Grunur leikur á að pilturinn, Cameron Day, hafi orðið fyrir eldingu sem dró hann til dauða. Rok og talsverð rigning var á þessum slóðum þegar slysið varð og segist kona, búsett á svæðinu, hafa séð Cameron á hjólinu rétt áður en það skall á með þrumuveðri.
„Það kom skyndilega mikill blossi og hávær þruma. Ég þorði ekki öðru en að fara inn því hávaðinn var mjög, mjög mikill,“ segir konan í samtali við CBS News. Þegar veðrinu hafði slotað fór konan aftur út og sá þá þegar sjúkraflutningamenn voru að flytja drenginn burt skammt frá.
Cameron var með slæm brunasár á brjóstkassa og á nárasvæðinu og þá var hola í stéttinni skammt frá honum sem kom að öllum líkindum eftir eldinguna.
Cameron var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi þetta sama kvöld.