Fyrrum varnarmaðurinn Phil Jones hikaði ekki við að svara aðdáanda sínum er þeir hittust í fyrsta sinn – Jones hefur í dag lagt skóna á hilluna.
Jones var gríðarlegt efni á sínum tíma og var keyptur til Manchester United frá Blackburn en ferillinn náði ekki beint hæstu hæðum.
Jones er ekki hrifinn af því að fólk segi að ferill hans hafi í raun farið í vaskinn eftir að hafa spilað yfir 220 leiki fyrir United og unnið nokkra titla.
Englendingurinn spilaði þó nánast ekkert frá 2019 til 2023 og átti yfirleitt erfitt með að festa sig í sessi á Old Trafford.
,,Það var einhver sem sagði við mig: ‘Oh, það er leiðinlegt hvað gerðist við ferilinn þinn Phil en það er gaman að kynnast þér,’ sagði Jones.
,,Ég spurði einfaldlega: ‘Ha? Hvað áttu við? Ég spilaði fyrir Manchester United í tíu ár, vann ensku úrvalsdeildina og spilaði yfir 200 leiki. Ég spilaði á tveimur HM, vann Evrópudeildina, FA Bikarinn og þú ert að segja þetta við mig?’
Jones er enn aðeins 32 ára gamall en hann spilaði með United frá 2011 til 2023 og þá með enska landsliðinu frá 2011 til 2018.