fbpx
Föstudagur 27.september 2024
Pressan

Svartbjörn réðst á fullorðinn mann – Þá kom 12 ára sonurinn til sögunnar

Pressan
Mánudaginn 23. september 2024 07:30

Svartbjörn. Mynd:US Fish and Wildlife Service

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 6. september voru feðgar saman á veiðum í Wisconsin í Bandaríkjunum. Faðirinn, hinn 43 ára Ryan Beierman, skaut þá úr skammbyssu á svartbjörn og særði hann. Björninn brást við þessu með því að ráðast á hann og áður en Beierman vissi af, lá hann undir birninum.

„Það eina sem ég sá voru klær og tennur. Ég lyfti hægri handleggnum til að reyna að loka fyrir árás hans. Ég man eftir fyrsta bitinu. Ég heyrði marr, björninn var enn að ráðast á mig. Hann vildi ekki fara frá mér,“ hefur AP eftir Beierman.

En það varð honum líklega til lífs að 12 ára sonur hans, Owen, náði veiðiriffli föður síns og skaut og drap björninn sem lá ofan á Beierman.

Beierman náði síðan að ýta birninum ofan af sér. Hann sagðist telja að árásin hafi staðið yfir í um 45 sekúndur.

Gert var að sárum hans á sjúkrahúsi en hann var með fjölda bitsára og skurð á hægri handleggnum. Auk þess hafði björninn gert gat í aðra kinn hans og sauma þurfti 23 spor í bringuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fyrrverandi klefafélagi hins grunaða í máli Madeleine McCann varpar sprengju

Fyrrverandi klefafélagi hins grunaða í máli Madeleine McCann varpar sprengju
Pressan
Í gær

Rússneskur hermaður baðst vægðar – Það sem gerðist næst hefur vakið athygli

Rússneskur hermaður baðst vægðar – Það sem gerðist næst hefur vakið athygli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þegar tveir fíkniefnabarónar voru handteknir í Bandaríkjunum óttaðist fólk hið versta – Nú hefur það gengið eftir

Þegar tveir fíkniefnabarónar voru handteknir í Bandaríkjunum óttaðist fólk hið versta – Nú hefur það gengið eftir
Pressan
Fyrir 2 dögum

20 árum eftir andlát hans opnaði hún hlöðuna hans loksins – Mögnuð sjón blasti við henni

20 árum eftir andlát hans opnaði hún hlöðuna hans loksins – Mögnuð sjón blasti við henni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notaði ekki reiðhjólahjálm – Kostaði hann hálft höfuðið

Notaði ekki reiðhjólahjálm – Kostaði hann hálft höfuðið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn telja að goðsögnin um fimbulvetur eigi sér stoð í raunveruleikanum – Tengist Íslandi

Vísindamenn telja að goðsögnin um fimbulvetur eigi sér stoð í raunveruleikanum – Tengist Íslandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sextán ára piltur var úti að hjóla þegar ógæfan bankaði upp á

Sextán ára piltur var úti að hjóla þegar ógæfan bankaði upp á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn segja fólki að forða sér – árásir yfirvofandi

Ísraelsmenn segja fólki að forða sér – árásir yfirvofandi