Albert Guðmundsson var 124 sekúndur að stimpla sig inn í treyju Fiorentina en hann er nú að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Fiorentina var 0-1 undir gegn Lazio á heimavelli í Seriu A þegar Albert var kallaður til leiks, hann hefur jafnað sig af meiðslum sem hafa hrjáð hann.
Albert var í búinn að fiska víti eftir rúmar tvær mínútur en hann kom til Fiorentina frá Genoa í sumar.
Albert steig sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi og stimplar sig hressilega inn hjá ítalska félaginu.
Markið má sjá hér að neðan,
⚽️GOAL! Albert Gudmundsson | Fiorentina 1-1 Laziopic.twitter.com/bATfshqwbf
— Goals Xtra (@GoalsXtra) September 22, 2024