Aron Pálmarsson, einn fremsti handboltamaður Íslandssögunnar, var gestur þeirra Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar í Íþróttavikunni á 433.is.
Aron sneri heim í FH í fyrra eftir glæstan feril í atvinnumennsku. Eitt af því sem hann hefur þurft að venjast með því að koma aftur heim er að æfa seinni partinn en ekki á morgnanna eins og í atvinnumennskunni.
„Það er bara ömurlegt. Maður finnur sér alltaf eitthvað að gera en burt séð frá því er bara himinn og haf á milli þess að æfa seinni partinn eða að morgni,“ sagði Aron í þættinum.
„Við erum ekkert nema vaninn. Í Barcelona byrjaði þjálfarinn einu sinni að æfa klukkan 11 og það varð bara allt vitlaust. Við töluðum við hann og báðum um að æfa 10, þetta var bara allt of seint. Hann hélt kannski bara að við vildum sofa aðeins lengur en nei, nei.“
Umræðan í heild er í spilaranum.