Greint var frá því í gær og í vikunni að Trent Alexander-Arnold, leikmaður Liverpool, hefði áhuga á að kaupa franska félagið Nantes.
Nantes er nokkuð stórt lið í Frakklandi en liðið leikur í efstu deild og mætir Angers á morgun í þeirri keppni.
Trent hefur víst áhuga á að kaupa Nantes ásamt föður sínum, Michael, og eru þeir tilbúnir að borga allt að 84 milljónir punda.
Waldemar Kita, eigandi og forseti Nantes, hefur nú svarað þessum sögusögnum og þvertekur fyrir að það sé eigandaskipti séu á döfinni.
,,Þetta er allt kjaftæði! Hvaðan koma þessar fréttir?“ sagði Kita í samtali við Presse Ocean.
,,Trent Alexander Arnold? Ég þekki hann ekki neitt. Ég hef aldrei fundað með einhverjum á netinu, þetta er kjaftæði.“