Aron Pálmarsson, einn fremsti handboltamaður Íslandssögunnar, var gestur þeirra Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar í Íþróttavikunni á 433.is.
Þjóðin mun sameinast yfir sjónvarpinu í upphafi næsta árs, eins og önnur ár, og styðja Strákana okkar í handboltalandsliðinu á HM. Aron vonast innilega til að nú sé kominn tími á Ísland til að fara alla leið á stórmóti.
„Við erum með frábært lið, flottan þjálfara og erum með allt til alls innan liðsins. En eins og ég hef sagt margoft og þið séð, það er svo stutt á milli í þessu. Eins stutt og er á milli í þessu getur þú samt stýrt því betur. Það er ástæða fyrir öllu. Við þurfum bara að finna þessa réttu uppskrift í janúar. Við erum helvíti nálægt því. Við erum með geggjað lið og eigum auðvitað að ná árangri núna eða á næstu 2-3 árum,“ sagði Aron í þættinum.
„Þó ég sé búinn að vera í þessu lengi fæ ég enn sjokk yfir hvað þetta er stórt og skiptir miklu máli, sem er bara geðveikt. Þess heldur vill maður ná árangri. Maður notar þetta á jákvæðan hátt.“
Eins og gefur og skilja fjalla fjölmiðlar af kappi um landsliðið í kringum stórmót. Aron hefur ekkert á móti því að tekið sé á liðinu þar ef það er ekki að standa sig.
„Það á ekkert að vera eitthvað meðvirkur með þér. Þá fyrst yrði ég pirraður,“ sagði hann.
Umræðan í heild er í spilaranum.
Íþróttavikan er í boði Bola léttöl og Lengjunnar