Aron Pálmarsson, einn fremsti handboltamaður Íslandssögunnar, var gestur þeirra Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar í Íþróttavikunni á 433.is.
Það fór ekki framhjá mörgum þegar Aron sneri heim í FH í fyrra eftir glæstan feril í atvinnumennsku. Hrafnkell spurði hann að því hvort það hafi ekki komið sér vel að spila í íslenska boltanum er hann fór með landsliðinu á EM í janúar.
„Ég get alveg sagt það, mér fannst ég töluvert ferskari. Ég er búinn að vera með Hjört Hinriks einkaþjálfara á mér síðan ég kom heim og auðvitað er minna álag hér heima. Á sama tíma fæ ég að stjórna mér aðeins meira sjálfur en klúbburinn er búinn að hjálpa mér mikið,“ sagði Aron.
„Ég var meira að segja bara pirraður út í Snorra (Stein landsliðsþjálfara) fyrir að hafa ekki spilað mér meira,“ sagði Aron enn fremur, léttur í bragði.
Umræðan í heild er í spilaranum.
Íþróttavikan er í boði Bola léttöl og Lengjunnar