Sex einstaklingar sem sátu fyrir aftan forsetaframbjóðandann Donald Trump á kosningafund í Tuscon, Arizona, í síðustu viku kenndu sér í kjölfarið meins í augum. Ein kona lýsir því sem svo að hún hafi vaknað degi síðar nánast blind.
Mayra Rodriguez sagði við News4Tuscon að henni byrjaði að verða illt í augunum fljótlega eftir að hún yfirgaf kosningafundinn. „Um leið og við héldum heim, og stigum út fyrir húsið þá fann ég brunatilfinningu í augum,“ sagði hún. Hún endaði á bráðamóttökunni þar sem læknar hlúðu að henni, en þeir töldu líklegt að hún hafi fengið einhvers konar úða í augun. Fréttastofan heyrði í Mayra degi síðar og þá sagðist hún hafa vaknað nánast blind og sagði sárt að opna augun. Læknum tókst ekki að greina hvað olli þessu ástandi en Mayra mun þó öll vera að koma til.
Fyrst taldi hún að um óþekkt ofnæmi væri að ræða en svo komst hún að þvi að fimm aðrir, sem sátu á sama svæði og hún, upplifðu álíka einkenni. Gestir kosningafundarins sem sátu fyrir framan Trump kenndu sér ekki meins.
Fréttastofan ræddi eins við systkin sem sátu nærri Mayru.
„Þetta varð bara verra og verra, ég táraðist mikið, ég fékk nefrennsli og svo fann ég hvernig mér hitnaði í framan og leið eins og hálsinn á mér væri að brenna. Þetta hélt svo áfram að ágerast,“ sagði systirin. Bróðir hennar lýsti sársaukanum sem óbærilegum og sagði að augu hans hafi orðið eldrauð.
Framboð Trump segist vera að rannsaka atvikið, en leyniþjónustan sem sér um öryggisgæslu Trump telur ekki að um árás hafi verið að ræða að svo stöddu.