Yfirvöld segja að þetta sé „mikið áfall fyrir skipulögð glæpasamtök“ sem standa að innflutningi fíkniefna til Bretlands.
Fjórmenningarnir eru á aldrinum 26 til 46 ára. Þeir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Sky News hefur eftir Derek Evans, talsmanni National Crime Agency, að það sé mikið áfall fyrir skipulögð glæpasamtök að missa svona mikið magn af fíkniefnum sem voru ætluð breska markaðnum.
Hann sagði jafnframt að rannsókn málsins verði nú haldið áfram.