Lögreglumennirnir gáfu manninum fyrirmæli um að stoppa en hann neitaði og sagði: „Ég drep ykkur ef þið hættið ekki að elta mig.“ Lögreglumennirnir sáu þá að hann var með hníf.
Sky News hefur eftir talsmanni lögreglunnar að lögreglumennirnir hafi fylgt manninum eftir inn í lestarvagn sem var á lestarstöðinni og hafi skotið tveimur skotum úr rafvopni en hvorugt hafi lagt manninn að velli. Því næst gekk maðurinn að lögreglumönnunum með hnífinn á lofti og skutu þeir þá báðir nokkrum skotum að honum.
Maðurinn, sem er 37 ára, fékk nokkur skot í sig. Hann liggur nú á sjúkrahúsi en er ekki í lífshættu.
Tæplega fimmtugur karlmaður, sem var í lestinni, varð fyrir skoti. Það hæfði hann í höfuðið og er hann í lífshættu. 26 ára kona hlaut minniháttar áverka þegar skot hæfði hana. Annar lögreglumaðurinn fékk skot í handarkrikann og annað í bakið en læknar telja að hann muni ná sér að fullu.