Tveir lykilmenn eru byrjaðir að æfa með Manchester United sem eru ekkert nema frábærar fréttir fyrir félagið.
Rasmus Hojlund og Mason Mount eru byrjaðir að æfa með aðalliði félagsins en sá fyrrnefndi hefur ekkert spilað á tímabilinu.
Mount sem er 25 ára gamall meiddist í síðasta mánuði gegn Brighton en ljóst er að hans meiðsli eru ekki of alvarleg.
United hefur staðfest að leikmennirnir séu mættir á æfingasvæðið og er mjög stutt í endurkomu.
Hojlund er saknað í sóknarlínu United sem spilaí í deildabikarnum í vikunni og vann öruggan 7-0 sigur á Barnsley.