Í dag sitja 19 í gæsluvarðhaldi, aðallega vegna aðgerða lögreglu í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Af þeim sitja 11 inni vegna innflutnings á fíkniefnum en aðrir eru grunaðir um brot á útlendingalögum eða um mansal.
Frá þessu greinir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í pistli á vef embættisins.
„Einn Íslendingur er í hópi þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi. Aðrir eru frá Gana, Egyptalandi, Frakklandi, Súrínam, Hollandi, Kanada, Georgíu, Marokkó, Tékklandi, Brasilíu og Kólumbíu. Flestir koma til landsins frá öðru Evrópulandi,“ segir Úlfar. „Þeir sem innbyrt hafa fíkniefni skila þeim af sér í gegnum meltingarveg í sérútbúinni aðstöðu á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ. Aðstaða sem ekki er að finna á öðrum lögreglustöðvum eða fangelsum hér á landi.“
Að sögn Úlfars er álag á starfsmenn embættisins mikið, ekki síst vegna fjölda frávísunarmála. Aðgerðir lögreglu og tollgæslu í flugstöðinni séu einstakar ef horft er til þróunar slíkra afskipta hér á landi frá fullri þátttöku Íslands í Schengen samstarfinu árið 2001.
Það sé þó áhyggjuefni að ekki hafi tekist betur til í áranna rás að halda uppi öflugra landamæraeftirliti, ekki síst á innri landamærum. Frávísunarmálin séu orðin 622 en voru 439 á öllu árinu í fyrra.
„Fyrir íslenska þjóð skiptir eftirlit á innri landamærum Schengen gríðarlega miklu máli ekki síst þegar hriktir í stoðum landamæraeftirlits í Evrópu,“ segir Úlfar. „Áherslur hafa verið á ytri landamærum Schengen samstarfsins en innri landamærum hefur að sama skapi verið gefinn lítill gaumur.“
Greining farþegaupplýsinga sé lykilþáttur í eftirliti á innri landamærum en hafi ekki áhrif á afnám persónubundins eftirlits á innri landamærum Schengen ríkja. Frumkvæðisvinna og innlend sem erlend lögreglusamvinna sé mikilvæg.
„Á sama tíma býr lögreglan á Suðurnesjum við aðstöðuleysi en eins og kunnugt er hefur einungis verið hægt að nota fangaklefa lögreglustöðvarinnar í Reykjanesbæ og hefur svo verið frá því í október á síðasta ári. Stöðin hefur að öðru leyti verið ónothæf,“ segir Úlfar. „Unnið er að endurbótum en brýnt er að hraða framkvæmdum, en áætlað er að þeim ljúki í febrúar á næsta ári. M.a. verða settir upp sérútbúnir gámar til bráðabirgða til að bæta vinnuaðstöðu lögreglu. Lögreglustjóri hefur lagt á það áherslu að verkinu verði lokið á þessu ári, en alls er óvíst að framkvæmdum ljúki á tilsettum tíma. Reyndar bendir fátt til þess.“