Eitt af öflugri fjárfestingafélagum landsins, Gnitanes ehf., hefur farið fram á nauðungarsölu á einbýlishúsi við Seljugerði 12 í Reykjavík, sem er í eigu athafnamannsins Jóns Óðins Ragnarssonar í gegnum félag hans Hótel Valhöll ehf. Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag. Húsið, sem er 334 fermetrar af stærð, er auglýst til sölu á almennum markaði um þessar mundir og er ásett verð 295 milljónir króna. Í lýsingu á húsinu kemur meðal annars fram að það státar af glæsilegri innanhússundlaug sem er síður en svo algengt hérlendis.
Gnitanes ehf. er í eigu Einars Arnar Ólafssonar, forstjóra Play, og hjónanna Ingmundar Sveinssonar og Sigríðar Arnbjarnardóttir. Gnitanes ehf. á hlut í mörgum af öflugustu fyrirtækjum landsins en félagið hagnaðist um rúman einn milljarð króna í fyrra. Einar Örn stýrir félaginu ásamt Arnbirni Ingimundarsyni, syni Ingimundar og Sigríðar. Staða félagsins er firnasterk en það er nær skuldlaust og á eignir upp á tæpa 11 milljarða króna.
Jón Óðinn, sem er fæddur árið 1939, er þekktur athafnamaður, sérstaklega í hótelrekstri. Hann erfði Hótel Valhöll og rak gistiaðinn um árabil sem og Hótel Örk í Hveragerði. Þá rak hann kvikmyndahúsið Regnbogann um árabil auk þess að komast í fréttirnar fyrir deilur sem sneru að fasteign sem veitingahúsið Caruso á Laugarvegi var starfrækt í um árabil. Þær deilur urðu tilefni til ítarlegrar úttektar á ferli Jóns Óðins sem birtist á Vísi árið 2014 en óhætt er að segja að hann hefur víða komið við.
Nauðungarsölukrafan er tilkomin vegna 35 milljón króna láns sem Jón Óðinn sló árið 2022 frá Gnitanesi ehf. gegn veði í Seljugerði 12. Veðskuldabréfið er núna í vanskilum en heildarskuldin hljóðar nú upp á tæpar 44 milljónir króna.