Brittany, 35 ára, kom Jax, 45 ára, verulega á óvart með því að sækja um skilnað í lok ágúst. Þau höfðu verið skilin að borði og sæng síðan í febrúar en Jax sagði í hlaðvarpsþætti í byrjun september að hann hafi aldrei búist við að hún myndi taka lokaskrefið.
„En ég álasa henni ekki fyrir þetta. Ég meina, ég á erfitt með að trúa að hún hafi verið svona lengi með mér til að byrja með,“ sagði hann.
Parið á þriggja ára son saman, Cruz.
Brittany sagði frá því í samtali við DailyMail að hún hafi farið í fitusog og húðstrekkingu í maí til að undirbúa „hefndarkroppinn“ fyrir sumarið.
„Ég vildi líta vel út eftir allt sem ég hef þurft að ganga í gegnum þetta ár,“ sagði hún. „Ég vildi líta vel út, ég vildi fá neistann aftur.“
Aðgerðin var framkvæmd á kviðnum. „Ég vildi smá aðstoð við að skerpa á kviðnum því hann hefur ekki verið eins eftir að ég átti son minn [árið 2021]. En nú er ég minni og líður frábærlega,“ sagði hún.
Þó Brittany hafi gengist undir fegrunaraðgerð þá hefur mesta sjálfsvinnan snúist að því að styrkja innri mann.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá bjóst ég við því að vera með Jax að eilífu, þannig þetta er nýtt fyrir mig. Það er að taka smá tíma að jafna mig og halda áfram.“
Brittany og Jax kynntust fyrst í Las Vegas árið 2015. Áhorfendur fengu að fylgjast með sambandi þeirra í raunveruleikaþáttunum Vanderpump Rules og síðan í Jax & Brittany Take Kentucky. Þau gengu í það heilaga í júní 2019.
Fyrsti framhjáhaldsskandallinn var árið 2017 þegar Jax hélt framhjá Brittany með sjónvarpsstjörnunni Faith Stowers. Þau hættu saman en byrjuðu aftur saman nokkrum mánuðum seinna. Undanfarið ár hafa kjaftasögur verið á kreiki um að Jax hafi ekki verið trúr Brittany. Hann hefur neitað fyrir það.