Hinn 39 ára gamli Brendan Banfield hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt eiginkonu sína, Christine, og meintan elskhuga hennar, hinn 38 ára gamla Joseph Ryan í febrúar 2023.
Áður hafði brasilísk au-pair stúlka hjónanna, Juliana Peres Magalhaes, verið ákærð fyrir morðið á Joseph en þar til í vikunni hafði enginn verið ákærður fyrir morðið á Christine. Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjum. Ýmislegt bendir til þess að au-pair stúlkan, sem átti í ástarsambandi við Brendan, hafi skipulagt ódæðið til þess að losna við eiginkonuna og reynt að koma sökinni á Joseph.
Morðin áttu sér stað þann 24. febrúar árið 2023 Á yfirborðinu virtist allt með felldu, Brendan og Christine, sem var 37 ára gömul, voru hamingjusamlega gift og áttu fjögurra ára dóttur. Til að aðstoða sig höfðu þau fengið Juliönu sem au-pair stúlku á heimili til að aðstoða sig.
En þessa áðurnefndu kvöldstund segjast Brendan og Juliana hafa komið að Joseph að stinga Christine með hníf. Það hafi endað með því að átök brutust út og Brendan skotið Joseph með skammbyssu. Byssan barst svo til Juliana sem skaut Joseph banvænu skoti.
Christine var flutt helsærð á spítala þar sem að hún lést af sárum sínum. Svo leit út fyrir að Joseph hefði drepið Christine en síðan fór að renna tvær grímur á laganna verði
Saksóknaraembættið ytra er nú sannfært um það að Juliana sé höfuðpaurinn í málinu. Svo virðist sem að hún hafi lokkað Joseph að heimili Banfield-hjónanna í gegnum „Fetlife“ – stefnumótasíðu þeirra sem hafa áhuga á hverskonar blætum.
Þar hafi nafnlaus notanda, Annastasia9, boðið honum í heimsókn á heimili Banfield. Joseph hafi þegið boðið en þegar hann mætti á vettvang hafi hann verið skotinn til bana og látið líta út fyrir að hann hafi banað Christine með hníf.
Eftir morðin héldu Brendan og Juliana ástarsambandi sínu áfram en loks fóru böndin að beinast að þeim. Juliana var handtekin og ákærð fyrir morðið á Josep í október í fyrra og nú telur lögreglan sig hafa nægar sannanir til að fá Brendan sakfelldan með henni.