Þrír íslenskir menn á fertugs og fimmtugsaldri hafa verið ákærðir fyrir stórfelld tollsvik í tengslum við innflutning á sígarettum frá Evrópu. Tveir þeirra forsvarsmenn fyrirtækis sem seldi sígaretturnar og einn starfsmaður flutningafyrirtækis.
Héraðssaksóknari hefur ákært tvo forsvarsmenn félagsins Áfengi og tóbak ehf (áður Tóbaksfélag Íslands) og einn starfsmann flutningafyrirtækisins Thor Shipping fyrir brot gegn tollalögum og lögum um gjald af áfengi og tóbaki og til upptöku ávinnings og til greiðslu sektar samkvæmt tollalögum og almennum hegningarlögum. Málið er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Meint brot voru framin á árunum 2015 til 2018. Eru þremenningarnir sakaðir um að hafa í alls níu skipti veitt íslenskum tollayfirvöldum rangar og villandi upplýsingar þegar félagið Áfengi og tóbak flutti inn reyktóbak og vindlinga frá Þýskalandi, Belgíu og Danmörku.
Hafi einn þeirra, starfsmaður Thor Shipping, tilgreint rangar vörutegundir í aðflutningsskýrslum fyrir tollafgreiðslu. Annars vegar að um hafi verið að ræða prótein og hins vegar pappírsvörur. Með þessum gjörningum hafi þessir aðilar komist hjá því að borga meira en 740 milljónir króna í lögbundið tóbaksgjald.
Þann 10. apríl haldlögðu tollayfirvöld sendingu sem innihélt rúmlega 440 þúsund pakka af vindlingum. Sendingin var skráð sem prótein. Undanskotin í þessari einu sendingu voru rúmlega 270 milljónir króna samkvæmt ákærunni.
Fyrir utan að krafist er að þremenningunum verði dæmd refsing og þeir krafðir um greiðslu alls sakarkostnaðar þá er þess einnig krafist að áðurnefnd haldlögð sending af vindlingum verði gerð upptæk.
Að auki er krafist upptöku ávinnings og upptöku til greiðslu sektar á haldlögðum og kyrrsettum verðmætum í eigu sakborninga. Það er nokkrum fasteignum í Reykjavík, Garðabæ, Stykkishólmi og í Bláskógabyggð sem og bankainnistæðum í íslenskum krónum, Bandaríkjadollurum og evrum. En um er að ræða upphæðir upp á samanlagt hundruð milljónir króna.
Starfsmaður Thor Shipping var jafn framt viðskiptastjóri félaga hinna tveggja og sá um allt sem við kom félaginu Áfengi og tóbak ehf. Samkvæmt gögnum málsins fékk hann áframsend til sín tölvupóstsamskipti félaga sinna við seljendur tóbaksins þegar óskað var eftir því að Thor Shipping tæki að sér flutning á vörunum til landsins. Í þeim samskiptum kom fram að sendingarnar innihéldu tóbak.
Héraðssaksóknari birti ákæruna þann 5. september síðastliðinn. Brot gegn 172. greinar tollalaga geta varðað fangelsi allt að sex árum.