fbpx
Föstudagur 27.september 2024
Pressan

Ertu graður/gröð? Þetta er besti tími vikunnar fyrir bólfarir

Pressan
Fimmtudaginn 19. september 2024 03:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ertu graður/gröð? Er orðið knýjandi að stunda kynlíf? Þá er eflaust gott að vita hvaða tími vikunnar hentar best til bólfara.

Í nýrri könnun kom í ljós að graðasti tími vikunnar er klukkan 22.09 á laugardögum. 43% aðspurðra sögðu að laugardagur sé uppáhaldsdagurinn þeirra þegar kemur að kynlífi.

34%, þeirra sem eru virk á kynlífssviðinu, sögðu að tíminn frá 22 til miðnættis sé sá tími sem þeim finnist munúðarfyllstur.

Af þessum 34% sögðust 80% telja að besti tímapunkturinn sé klukkan 22.09.

Kannski er það tíminn sem þú horfist í augu við einhvern ókunnugan á barnum eða þá að þá ljúki sjónvarpsáhorfi kvöldsins með ástinni þinni og það sé „kominn tími til að gera eitthvað annað“.

Tíminn frá klukkan 20 til 22 er einnig nokkuð vinsæll þegar kemur að kynlífsiðkun og kannski kemur það einhverjum á óvart að 54% kvenna sögðust helst vilja stunda kynlíf snemma að kvöldi.

Könnunin, sem var gerð af nærfataframleiðandanum Pour Moi, leiddi einnig í ljós að flestir stunda kynlíf einu sinni í viku. Það er því kannski ekki úr vegi að hlakka til laugardaga!

Föstudagur er næstvinsælasti dagurinn þegar kemur að kynlífi en 22% sögðust helst vilja stunda kynlíf þá.

10% sögðu sunnudaga besta daginn til kynlífs og 6% sögðust kjósa fimmtudag til slíkrar skemmtunar.

Minnst munúðarfulli tími vikunnar er mánudagur klukkan 13.02, að minnsta kosti ef marka má svör þátttakendanna.

Hvað varðar tíðni kynmaka þá sögðust 48% stunda kynlíf með einhverjum einu sinni í viku. 20% sögðust stunda kynlíf tvisvar í viku og 13% þrisvar. Aðeins 1% sagðist stunda kynlíf daglega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fyrrverandi klefafélagi hins grunaða í máli Madeleine McCann varpar sprengju

Fyrrverandi klefafélagi hins grunaða í máli Madeleine McCann varpar sprengju
Pressan
Í gær

Rússneskur hermaður baðst vægðar – Það sem gerðist næst hefur vakið athygli

Rússneskur hermaður baðst vægðar – Það sem gerðist næst hefur vakið athygli
Pressan
Í gær

Þegar tveir fíkniefnabarónar voru handteknir í Bandaríkjunum óttaðist fólk hið versta – Nú hefur það gengið eftir

Þegar tveir fíkniefnabarónar voru handteknir í Bandaríkjunum óttaðist fólk hið versta – Nú hefur það gengið eftir
Pressan
Í gær

20 árum eftir andlát hans opnaði hún hlöðuna hans loksins – Mögnuð sjón blasti við henni

20 árum eftir andlát hans opnaði hún hlöðuna hans loksins – Mögnuð sjón blasti við henni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notaði ekki reiðhjólahjálm – Kostaði hann hálft höfuðið

Notaði ekki reiðhjólahjálm – Kostaði hann hálft höfuðið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn telja að goðsögnin um fimbulvetur eigi sér stoð í raunveruleikanum – Tengist Íslandi

Vísindamenn telja að goðsögnin um fimbulvetur eigi sér stoð í raunveruleikanum – Tengist Íslandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sextán ára piltur var úti að hjóla þegar ógæfan bankaði upp á

Sextán ára piltur var úti að hjóla þegar ógæfan bankaði upp á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn segja fólki að forða sér – árásir yfirvofandi

Ísraelsmenn segja fólki að forða sér – árásir yfirvofandi