Live Science skýrir frá þessu og segir að þetta komi fram í rannsókn sem var nýlega birt í vísindaritinu Scientific Reports. Þar kemur fram að tvö kvendýr af tegundinni „Mustelus mustelus“, sem er í útrýmingarhættu, eignist afkvæmi hvað eftir annað þrátt fyrir að engin karldýr hafi komið nærri þeim árum saman. Þessi tegund lifir aðallega í Miðjarðarhafinu og öðrum hafsvæðum þar sem sjórinn er hlýr. Ólöglegar veiðar ógna tilvist tegundarinnar.
Kvendýrin hafa ekki komið nálægt karldýrum í 14 ár. Frá 2020 hafa þau bæði eignast afkvæmi án aðkomu karldýra og er því um „meyjarfæðingar“ að ræða. Þróast eggið þá yfir í afkvæmi án þess að vera frjóvgað af sæði karldýrs. Þetta er sjaldgæft hjá hryggdýrum en hefur sést hjá skriðdýrum eins og krókódílum vatnsslöngum og sumum fisktegundum. Svona lagað hefur aldrei áður sést hjá hákörlum.