Live Science segir að þeir hafi fundið dýrið þegar þeir voru að grafa í nýrri námu. Nú tekur við margra mánaða verkefni við að grafa dýrið upp.
Myndir af dýrinu voru birtar í byrjun ágúst.
Í kjölfar fundar námuverkamannanna héldu vísindamenn frá NEFU háskólanum í Yakutsk á vettvang og grófu horn dýrsins upp. Restin af hræinu verður grafin upp á næstu mánuðum að því er segir í tilkynningu frá NEFU.
Anatoly Nikolaev, rektor NEFU, sagði í tilkynningu að þetta sé einstakur fundur sem veiti vísindamönnum tækifæri til að rannsaka sögu svæðisins, dýralíf þess til forna, loftslagið og jarðfræðilegar aðstæður betur en hægt hefur verið fram að þessu.
Sífrerinn í Síberíu skapar kjörskilyrði fyrir varðveislu fornra dýra. Mjúkvefir þeirra þorna yfirleitt upp og þau varðveitast nánast eins og þau séu í frosnu „tímahylki“.
Ullarnashyrningar komu fram á sjónarsviðið fyrir um 300.000 árum í norðanverðri Evrasíu. Þeir dóu út fyrir um 10.000 árum.