fbpx
Laugardagur 14.september 2024
Pressan

Galnar samsæriskenningar um frammistöðu Kamala Harris í kappræðunum

Pressan
Föstudaginn 13. september 2024 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Donald Trump hafa margir viðurkennt með semingi að mótframbjóðandi hans, Kamala Harris, hafi staðið sig betur í kappræðum forsetaframbjóðendanna á þriðjudaginn. Margir þessara stuðningsmenna vilja þó halda því fram að Harris hafi aðeins staðið sig betur þar sem brögð voru í tafli.

Vinsælasta samsæriskenningin sem gengur um netheima um kappræðurnar er að Kamala Harris hafi verið með heyrnatól þar sem hún var mötuð á því sem hún ætti að segja. Til að rökstyðja samsærið er bent á eyrnalokka varaforsetans, en á Kickstarter má finna sérstaka hljóð-eyrnalokka sem mörgum þykir svipa til eyrnalokkanna sam Harris klæddist í kappræðunum.Eyrnalokkarnir nefnast NOVA H1 og seinasta uppfærslan frá verkefninu var árið 2023 og virðist ekki hafa verið stofnuð sérstök vefsíða til að selja þá svo ætla má að verkefnið hafi ekki komist á það flug sem því var ætlað. Eins virðast sumir þeirra sem styrktu NOVA H1 verkefnið aldrei hafa fengið vöruna afhenta og hafa skilið eftir athugasemdir þar sem aðstandendur eyrnalokkanna eru kallaðir svikarar.

Hins vegar þykir mun líklegra að Harris hafi verið með ósköp venjulega eyrnalokka sem hún líklega keypti frá vinsæla skartgripabúðinni Tiffany, en Harris hefur notað þessa sömu eyrnalokka við mörg tilefni.

 

Nova hljóð-eyrnalokkar
Eyrnalokkar úr Tiffany
Eyrað á Kamala Harris í kappræðunum

 

Önnur samsæriskenning gengur líka en þar segir að Kamala Harris hefi fengið spurningarnar sendar fyrirfram og því getað undirbúið sig betur en Trump. Þessi kenning þykir sérstalega vanhugsuð þar sem forsetaframbjóðendur fá yfirleitt engar óvæntar spurningar í svona kappræðum. Þeir eru spurðir um stefnumál sín og svo um umdeild mál þeim tengd. Væntanlega fátt þar sem kemur á óvart. Svo virðist sem þessa kenningu megi rekja til aðgangsins @VoteHarrisOut á X (áður Twitter). Þar sagðist viðkomandi eiga sannanir fyrir því að Kamala hefði fengið spurningarnar fyrir kappræðurnar og henni lofað að stjórnendur myndu ekki sannreyna nokkuð sem hún segði, en hins vegar sannreyna allt sem kæmi frá Trump. Viðkomandi lofaði því að innan fárra daga yrðu þessar sannanir birtar eftir að búið væri að afmá persónugreinanlegar upplýsingar uppljóstrara. Gagnrýnendur þessarar samsæriskenningar hafa eins bent á að varla taki það langan tíma að afmá upplýsingar úr eiðsvarinni yfirlýsingu.

Það sem helst vekur athygli við gagnrýni stuðningsmanna Trump er hversu sárir þeir eru yfir því að stjórnendur kappræðna hafi vakið athygli á því þegar forsetaframbjóðandinn fór með rangfærslur. Þeir þræta ekki fyrir að um rangfærslur sé að ræða en finnst þó að það hafi ekki verið hlutverk stjórnenda að vekja athygli á því.

Eins hafa kenningar gengið um að Harris og stjórnendur kappræðnanna hafi verið saman í ráðum því að Harris og annar stjórnandinn voru í sama systralaginu í háskóla. Þessar sögur ganga þó að það sé 15 ára aldursmunur á konunum og þó svo að sama systralagið sé rekið í fjölda háskóla víða um heiminn. Jafnvel er gengið svo langt að saka stjórnendur kappræðnanna um að taka þátt í stríðinu gegn upplýsingaóreiðu og falsfréttum sem sé í eðli sínu aðför að tjáningarfrelsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Biður Trump og Vance að hætta að nota harmleik í pólitískum tilgangi – „Ég vildi að sonur minn hefði verið drepinn af sextugum hvítum manni“

Biður Trump og Vance að hætta að nota harmleik í pólitískum tilgangi – „Ég vildi að sonur minn hefði verið drepinn af sextugum hvítum manni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Taldi sig hafa unnið draumaferð til Ástralíu en ekki var allt sem sýndist

Taldi sig hafa unnið draumaferð til Ástralíu en ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna átt þú að setja ferðatöskuna þína í baðkar á hótelinu

Þess vegna átt þú að setja ferðatöskuna þína í baðkar á hótelinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Heppinn miðahafi vann yfir hundrað milljarða í lottóinu í gær

Heppinn miðahafi vann yfir hundrað milljarða í lottóinu í gær
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fast skotið í kappræðunum í nótt: „Þjóðarleiðtogar um allan heim hlæja að Donald Trump“

Fast skotið í kappræðunum í nótt: „Þjóðarleiðtogar um allan heim hlæja að Donald Trump“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hrottalegt mál skekur þýskan bæ – Fjórir handteknir

Hrottalegt mál skekur þýskan bæ – Fjórir handteknir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Keyptu nýjan Iphone en urðu steinhissa þegar umbúðirnar voru opnaðar

Keyptu nýjan Iphone en urðu steinhissa þegar umbúðirnar voru opnaðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Norður-Kóreumenn ætla að margfalda kjarnorkuvopnabúr sitt

Norður-Kóreumenn ætla að margfalda kjarnorkuvopnabúr sitt