fbpx
Fimmtudagur 12.september 2024
Fréttir

„Virkaði þetta? Nei,“ segir Pútín – En er það rétt?

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. september 2024 07:00

Úkraínskir hermenn í Kursk búnir að taka rússneska fánann niður. Skjáskot/X

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladímír Pútín hefur montað sig af að Rússar hafi ekki gengið í gildru Úkraínumanna í Kúrsk. En það er hægt að horfa á innrás Úkraínumanna í héraðið á að minnsta kosti sex ólíka vegu og niðurstaðan er ekki sú sama í öllum þessum sviðsmyndum.

„Hvernig endar þetta?“ er spurningin sem rússneska elítan spyr sig nú að sögn William Burns, forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA.

Það er kannski engin furða því Úkraínumenn ráða nú yfir 1.300 ferkílómetrum af Kúrsk. En stóra spurningin er hvað þeir ætla sér með þetta rússneska landsvæði? Síðan er auðvitað spurning hvernig þetta gengur hjá þeim?

Sérfræðingar hafa bent á sex þætti sem koma að þeirra mati til greina sem takmarkið með innrás Úkraínumanna. Þeir eru: að koma upp „stuðpúða“ svæði í Rússlandi til að gera Rússum erfiðara fyrir við að ráðast á Úkraínu, að hafa eitthvað til að semja um, til að fá Vesturlönd til að heimila víðtækari notkun á vopnum frá þeim, að koma upp um blekkingar Pútíns, til að þvinga Rússa til að flytja hersveitir til eða til að þrýsta á um fangaskipti.

Út frá sumum þessara þátta er hægt að segja að innrásin hafi tekist vel en það eru þó takmörk á hversu langt sú gleði nær að sögn Olivier Schmitt, sem er prófessor við Center for War Studies við Syddansk Universitet í Danmörku.

Í samtali við Jótlandspóstinn sagði hann að innrásin væri „djarft spil“ og að innan nokkurra vikna komi í ljós hvort hún sé hugsanlega hluti af því að ná ákveðnu markmiði sem sé enn haldið leyndu. Undir vetrarbyrjun telur hann að það komi endanlega í ljós hvert markmiðið var.

Stríðsaðilarnir virðast ekki enn hafa gert upp við sig hvernig þeir tala um innrásina í Kúrsk. Fyrir nokkrum dögum sagði Oleksandr Syrskyy, yfirmaður úkraínska hersins, í samtali við CNN að innrásin hafi heppnast vel. Hún dragi úr hættunni á sókn Rússa og komi í veg fyrir að þeir geti gripið til aðgerða. Einnig hafi stríðið verið flutt inn á rússneskt landsvæði svo Rússar finni fyrir því sem Úkraínumenn finna fyrir daglega. Hann hefur einnig játað að aðalmarkmiðið með sókninni hafi ekki náðst. Úkraínumenn tóku Rússa í bólinu með innrásinni en þeir brugðust ekki við með því að flytja hersveitir frá Donetsk til Kúrsk.

„Virkaði þetta? Nei,“ sagði Pútín þegar hann ræddi við skólabörn í Síberíu nýlega og montaði sig af að her hans hefði þess í stað hert sóknarþunga sinn í Donetsk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Danir sviptu Nuuk flugvöll alþjóðaleyfinu – Forsætisráðherrann segir ástandið óviðunandi

Danir sviptu Nuuk flugvöll alþjóðaleyfinu – Forsætisráðherrann segir ástandið óviðunandi
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Friðrik segir drengi nídda niður í hatrammri réttrúnaðarumræðu – „Hundsaðir, niðurlægðir, hæddir og skammaðir“

Friðrik segir drengi nídda niður í hatrammri réttrúnaðarumræðu – „Hundsaðir, niðurlægðir, hæddir og skammaðir“
Fréttir
Í gær

Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn – Engin ákæra verður gefin út vegna andláts Sofiu

Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn – Engin ákæra verður gefin út vegna andláts Sofiu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta eru „bestu“ lönd í heimi – Ísland kemst ekki á topp 20

Þetta eru „bestu“ lönd í heimi – Ísland kemst ekki á topp 20