fbpx
Þriðjudagur 10.september 2024
Fókus

Kona Gunnars fór í nýja lágvöruverslun og við henni blöstu tómar hillur og troðningur

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 10. september 2024 09:30

Gunnar Dan Wiium. Myndin til hægri tengist greininni ekki beint. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Dan Wiium, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Þvottahúsið, segir að það sé eitthvað mjög skrítið í gangi hérna á Íslandi.

„Um helgina heyrði ég mann – sem bæði aldrei talar illa um neinn og er með ríkt innsæi inn í alþjóða efnahagsmál – halda því fram að seðlabankastjóri væri hálfviti. Í gær sá ég að Facebook-vinur – sem kannski er smá aktívisti – fá sér stórt húðflúr af Bjarna nokkrum Ben í gervi bjarnabófa. Í morgun sá ég fasteignaauglýsingu þar sem fermetraverðið á tveggja herbergja íbúð sem byggð var rétt eftir stríðsár var komið í tæpar eina komma þrjár. Lítil tveggja herbergja á hundrað kúlur,“ segir Gunnar.

Hann segir frá nýlegri búðarferð eiginkonu sinnar. Hann nefnir ekki verslunina en draga má þá ályktun að hann sé að tala um nýju lágvöruverslunina Prís í Kópavogi.

„Um helgina fór konan mín í nýja lágvöruverslun því Bónus er orðin svo dýr og í nýju búðinni voru tómar hillur og troðningur. Atvinnurekendur eru hvattir til að veita ekki neinar launahækkanir svo að verðbólgan hjaðni en á sama tíma er verðbólgan góðæri fyrir þann sem gefur skilaboðin. Bankastofnanir og stórfyrirtæki græða á tá og fingri og verðbólgan er fyrir þeim kær komið ástand.“

Traustið orðið að engu

Gunnar segir að þetta snýst um traust, sem er þessa dagana ekkert.

„Traust milli venjulegs fólks og bankastofnana er ekkert. Traust milli venjulegs fólks og tryggingafélaga er ekkert. Traust milli venjulegs fólks og Alþingis er ekkert. Lífeyrissjóðir, bara gömul mýta, heilbrigðiskerfið orðið klofið kerfi, einkavætt til hægri og illa aðgengilegt til vinstri. Trúin á lýðræði er orðin að engu,“ segir hann.

„Það er skugga arkitekt bak við tjöldin og hann stillir sér ekki upp til kosninga, hann þarf þess ekki og situr tímabil eftir tímabil og ákvarðanir eru teknar. Aðgerðaráætlun sem snýr að því að hreinsa upp alla sjóði millistéttar og þrælavæða lægri stéttina. Öllu er sópað í einn sjóð sem fáir hafa aðgang að. Við erum að tala efnahags fasisma eða einræði pakkað í sellófan alræðis og vanmátturinn er algjör því DNA-ið okkar er stórslysa þrætt.“

Líður eins og hann sé á skilorði

„Ég hef aldrei lifað tíma sem þessa þar sem lýðræðisvitundin virðist vera í hnignun og stór hluti þjóðarinnar í upplausn á meðan góðæri ríkir fyrir eitt prósentið. Ég fæ að hanga á eignum eins og er svo lengi sem ég skulda ekki of mikið en mér líður samt sem áður eins og ég sé á skilorði,“ segir hann.

„Sem betur fer bjó ég erlendis í hálf-andan áratug og veit að ég get bara farið. Ég þarf nefnilega ekkert að búa á Íslandi nema að ég ákveði það. Það er ekkert mál að pakka bara í lítinn gám og láta sig hverfa, bara ein ákvörðun. Fyrir okkur er þetta bara spurning um nokkur ár í viðbót sem við þraukum undir valdníðslu fjármagnseiganda og borgum handrukkara-vextina og svo gefum við þeim puttann og förum.“

Gunnar skrifaði um málið á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Þið munuð sjá meira af mér í framtíðinni“

„Þið munuð sjá meira af mér í framtíðinni“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lætur ung börn sín borga leigu – Segir skólakerfið ekki kenna þeim nóg um fjármál

Lætur ung börn sín borga leigu – Segir skólakerfið ekki kenna þeim nóg um fjármál
Fókus
Fyrir 4 dögum

Robbie Williams og Ayda deila sorgarfréttum

Robbie Williams og Ayda deila sorgarfréttum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Liam Gallagher rífur kjaft við aðdáendur sveitarinnar vegna miðasölumálsins

Liam Gallagher rífur kjaft við aðdáendur sveitarinnar vegna miðasölumálsins