fbpx
Laugardagur 07.september 2024
433Sport

Mætti umdeildum leikmanni í Þjóðadeildinni – ,,Frábær fótboltamaður en frekar mikill fáviti“

Victor Pálsson
Föstudaginn 6. september 2024 12:00

Xhaka í leik með Arsenal.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joachim Andersen, leikmaður Danmerkur, viðurkennir að miðjumaðurinn Granit Xhaka geti verið ansi mikill fáviti á velli.

Xhaka og Andersen mættust í Þjóðadeildinni fyrir helgi en Danmörk hafði þar betur 2-0 gegn Sviss.

Xhaka var gríðarlega pirraður í þessum leik og reifst við þónokkra leikmennn Danmerkur – eitthvað sem hann hefur margoft gert í gegnum tíðina.

Miðjumaðurinn er í dag leikmaður Bayer Leverkusen en var áður á mála hjá Arsenal.

,,Xhaka er frábær fótboltamaður en hann er líka frekar mikill fáviti. Við þekkjum Granit, við vitum að hann er fljótur upp og verður reiður á vellinum,“ sagði Andersen.

,,Það er eins og það er. Hann er leikmaður sem ég ber mikla virðingu fyrir og stundum geturðu misst hausinn. Hann hefur náð að róast með árunum en í dag þá missti hann stjórn á skapinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Kristall Máni fór á kostum í sigri á Dönum

Kristall Máni fór á kostum í sigri á Dönum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Súld og brottfarir Íslendinga til útlanda möguleg ástæða fyrir fækkun

Súld og brottfarir Íslendinga til útlanda möguleg ástæða fyrir fækkun
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Svarar fyrir sig eftir að landsliðsþjálfarinn hraunaði yfir skref hans til Sádí Arabíu

Svarar fyrir sig eftir að landsliðsþjálfarinn hraunaði yfir skref hans til Sádí Arabíu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

City farið að skoða enska landsliðsmanninn fyrir næsta sumar

City farið að skoða enska landsliðsmanninn fyrir næsta sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hareide uppljóstrar því hvað hann og Aron Einar ræddu

Hareide uppljóstrar því hvað hann og Aron Einar ræddu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

,,Kaupa hvaða leikmann sem er svo lengi sem hann sé með púls“

,,Kaupa hvaða leikmann sem er svo lengi sem hann sé með púls“