Par hefur verið handtekið í Virginíufylki vegna ofbeldis gegn tveimur sonum konunnar. Drengirnir voru hlekkjaðir á heimilinu en náðu að hafa samband við systur sína.
Bandaríska fréttastofan Fox News greinir frá þessu.
Franklin Arquimedes Viera-Guevara, 29 ára, og Wendi Del Cid Rodriguez, 46 ára, voru handtekin í bænum Groveton í Virginíu eftir að lögregla fann syni Rodriguez hlekkjaða á heimili þeirra þann 15. ágúst síðastliðinn.
Annar drengjanna hafði náð að sækja farsíma og taka mynd af hlekkjunum. Sendu þeir myndina á systur þeirra sem hringdi strax á neyðarlínuna.
Þegar lögreglumenn komu á staðinn og bönkuðu á dyrnar heyrðu þeir hringl í hlekkjum. Þegar dyrnar voru opnaðar sáu lögreglumennirnir tvo drengi, 7 og 9 ára gamla, sem voru hlekkjaðir um ökklana við barnarúm.
Viera-Guevara, sem er ólöglegur innflytjandi frá El Salvador, og Rodriguez voru handtekin og eiga yfir höfði sér ákæru vegna ofbeldisbrota gegn börnum og brottnámi þeirra. Þá hefur Viera-Guevara einnig verið kærður fyrir að hafa komið ólöglega til landsins, en honum hefur áður verið vísað frá Bandaríkjunum.
Viera-Guevara og Rodriguez sögðu lögreglu að þau hefðu aðeins hlekkjað drengina í stuttan tíma til þess að hræða þá. Það er til þess að þeir myndu ekki strjúka af heimilinu.
Meðleigjandi þeirra sagði þetta hins vegar ekki rétt. Þau hefðu hlekkjað drengina og skilið þá eftir eina þegar þau fóru af heimilinu.