fbpx
Föstudagur 06.september 2024
EyjanFastir pennar

Steinunn Ólína skrifar: Nú er horfið Norðurland

Eyjan
Föstudaginn 6. september 2024 11:00

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mynd: Kári Sverrisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það á að breyta Siglufirði, Ólafsfirði, Héðinsfirði og Eyjafirði í eldisstöð fyrir 20 þúsund tonn af laxi. Þar á að framleiða næstum eitt prósent af öllum laxi sem er étinn í heiminum. Fylla Siglufjörð, Ólafsfjörð, Héðinsfjörð og Eyjafjörð af úrgangi úr hundraðasta hverjum laxi sem fæðist á jörðinni. Hundrað og þrítugasta hverjum, ef við viljum vera nákvæm. Norðlendingar eignast 0,7% af öllum laxaskít á jörðinni.

Í staðinn er íbúum á svæðinu lofað 10,1% af öllum arðgreiðslum af laxeldinu í sameiginlega sjóði til að mennta börnin, hýsa gamalmennin, reka menningarmiðstöðvar, stofur og setur. Ef allt gengur að óskum þýðir þetta að 30.000 íbúar fá um 200 milljónir á ári í sinn hlut á hverju ári upp úr 2030. Það eru 6500 krónur á mann. Einn bröns á Cafe Berlín á Akureyri, þrjú korter hjá grunnskólakennara eða ein bleik Smiley World Cheerful Moments skólataska fyrir leikskólabarn. 6500 krónur á mann.

Í ljósi þessara frétta orti ég tækifærisgaldra til hversdagsbrúks fyrir landa mína.

Best er að mæla þá af munni fram með hægð að morgni dags.

Hættið, hlustið,
helgar meyjar,
hetjur allar,
vættir, vinir,
um veröld alla.

Heyrast látið hávær köll
svo hlíðar muni skjálfa,
heitið svo á hellatröll
að hirta þessa bjálfa.
Nú kalla ég á lóminn!
Litlu kærleiksblómin!
Bölvaður heimsósóminn!
Tófur allar takið þá
bítið þá og bergið á.
Hjarnið kalt,
veðrið svalt
ullarlagður vakir á vír.
vís er dauðinn dýr,
vís er dauðinn dýr.

Enginn það tekur
sem lífið vekur,
nema fíflið og fáninn,
kjáninn og bjáninn.
Með borða um hjartað bittu það!
blíðan mín góð.

Fóstraðir fiskar
falskir um fljúga
firðirnir fúlna
farið þá allt.
Ættkvíslir skarast
fyrnast, farast
Allt er í heimi hallt
horfið allt.
Ræflarnir rupla,
gírugir greiða,
Sveitunga svíkja,
undirmenn strýkja
berjast munu bræður
bóndinn engu ræður
Megi þeir víkja
Megi þeir víkja
Engir munu elska þá sem Íslandsbörnin svíkja

Sjúkir vilja selja roðið
svöngum er til veislu boðið
helsjúkt, marið, svelt og pínt
fyrir glópagullið fínt
Megi þeir víkja
Megi þeir víkja
Engir munu elska þá sem Íslandsbörnin svíkja

Birtist ekki landið
Í blóðinu þínu?
Sérðu ekki sálina
í sandkorni fínu?
Hvernig lækurinn rennur,
árnar sig belgja,
vormóinn syngur,
foldarskart brennur.

Aldan rís
aldan hnígur
sólin rís
sólin sígur.
Hvert dagmál er bæn!
um líf, um líf!

Norðurlandið napurt
nakta Vanadís!
Mikið er það dapurt
meðtak ei þennan prís!
Barið er þitt blíða
bros og gullið tár
gylliboðin bíða
blóðs í þúsund ár!

Lifandi eða dauðir!
Ratið út villusauðir!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Ofdrykkjumenningin á Alþingi skýrir margt

Svarthöfði skrifar: Ofdrykkjumenningin á Alþingi skýrir margt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: 1150 ár

Björn Jón skrifar: 1150 ár
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Baráttan um hægra fylgið

Sigmundur Ernir skrifar: Baráttan um hægra fylgið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta
EyjanFastir pennar
01.08.2024

Þorsteinn Pálsson skrifar: Um traust og leiðsögn kjósenda

Þorsteinn Pálsson skrifar: Um traust og leiðsögn kjósenda
EyjanFastir pennar
28.07.2024

Jón Sigurður skrifar: Gerum Ísland vinsælt á ný!

Jón Sigurður skrifar: Gerum Ísland vinsælt á ný!
EyjanFastir pennar
25.07.2024

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert eftir nema efinn

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert eftir nema efinn
EyjanFastir pennar
21.07.2024

Björn Jón skrifar: Indriði í samtímaspegli

Björn Jón skrifar: Indriði í samtímaspegli