fbpx
Föstudagur 06.september 2024
Eyjan

Gömul upptaka kemur sér illa fyrir J.D. Vance

Eyjan
Fimmtudaginn 5. september 2024 04:20

J.D. Vance varaforsetaefni Donald Trump

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í hlaðvarpsupptöku frá 2021 lætur J.D. Vance, varaforsetaefni Donald Trump, gamminn geisa um eitt og annað, meðal annars femínisma og innflytjendamál. Nú hefur upptakan verið dregin fram í dagsljósið og er óhætt að segja að hún komi sér illa fyrir varaforsetaefnið.

Konur velja „beina leið til eymdar“ þegar þær taka starfsframann fram yfir börn og fjölskyldulíf.

Karlar í Bandaríkjunum líða fyrir að karlmennska þeirra er „bæld frá blautu barnsbeini“.

Konur, sem láta sig jafnrétti og kynþáttamál varða, gera það bara af því að þær eru bitrar yfir að geta ekki eignast börn.

Þetta er meðal þess sem Vance segir á upptökunni að sögn The Guardian.

Hlaðvarpið var gefið út af samtökunum American Moment. Vance ræddi við tvo stjórnendur um ýmis pólitísk málefni.

Hann veittist sérstaklega að Ilhan Omar, sem er þingkona Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Hún kom sem flóttamaður til Bandaríkjanna 1995 frá Sómalíu. Vance segir hana vera „vanþakkláta“ og að hún myndi „búa í skítaholu“ ef ekki væri fyrir Bandaríkin.

Hann fer heldur ekki leynt með fordóma sína í garð innflytjenda frá Afganistan og Sómalíu og segir meðal annars að það sé „brandari“ að ímynda sér að „allir Afganar séu gott fólk“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg skýtur fast á „Litla-Miðflokkinn“ 

Þorbjörg skýtur fast á „Litla-Miðflokkinn“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Franklín segir að Valhöll hafi sett fótinn niður þegar ungir sjálfstæðismenn vildu ræða ákveðið mál

Franklín segir að Valhöll hafi sett fótinn niður þegar ungir sjálfstæðismenn vildu ræða ákveðið mál
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins: Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu talsvert á eftir Norðurlöndunum

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins: Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu talsvert á eftir Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Vinstri stjórn Katrínar og Bjarna dauð – verður næsta stjórn skipuð Samfylkingu, Miðflokki og Viðreisn?

Orðið á götunni: Vinstri stjórn Katrínar og Bjarna dauð – verður næsta stjórn skipuð Samfylkingu, Miðflokki og Viðreisn?