fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
Fókus

Segir Ísland vera Eden fyrir kannabisræktun

Fókus
Miðvikudaginn 4. september 2024 15:41

Sigurður Jóhannsson, formaður Hampfélagsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Hampkastinu:

Ísland er Eden fyrir kannabisræktun

„Með okkar ódýru orku, góða vatn, kalda veðrið og lítinn raka höfum við fullkomna blöndu til að verða stórþjóð í kannabisræktun innanhúss. Við þurfum bara kjarkinn í það,“ segir Sigurður Jóhannsson, formaður Hampfélagsins. „Það er mikill áhugi á Íslandi erlendis frá og margir að skoða möguleikann á að setja upp vinnslustöðvar hér á landi.“

Sigurður var gestur í nýjasta þætti Hampkastsins þar sem hann kynnti alþjóðlega ráðstefnu Hampfélagsins sem haldin verður 11.-12. október næstkomandi í Salnum í Kópavogi. Ráðstefnan ber heitið Hampur fyrir framtíðina og flytja þar erindi heimsþekktir sérfræðingar úr greininni.

Sigurður segist trúa því að ráðstefnan komi til með að opna augu fólks um þá möguleika sem í hampinum felast og að hún sé frábært tækifæri fyrir áhugasama að efla tengslanet sitt í greininni. „Það er ótrúlegur áhugi á henni erlendis og fólk er að koma hingað hvaðanæva úr heiminum. Við erum með fyrirlesara á heimsmælikvarða og erum að fá að heyra eitthvað nýtt. Við erum að fá að heyra allar hliðar máls því það eru ekki eingöngu möguleikar fyrir bændur að nýta þessa plöntu heldur alls konar fyrirtækið sem standa í iðnaði. Við erum með fyrirtæki eins og Marel sem er að gera færibönd fyrir alls konar framleiðslu. Það er fyrirtæki sem gæti auðveldlega aðlagað sig að þessari grein og komið sterkir inn á markaðinn.“

Ættu að horfa til Danmerkur

Seinni dagur ráðstefnunnar verður helgaður lyfjahampinum sem hefur verið mikið í umræðunni hér á landi undanfarin misseri. Sigurður segir að íslensk stjórnvöld ættu að horfa til Danmerkur og reynslu Dana af lyfjahampinum.

„Við erum búin að fylgjast með Dönum fara rosalega varlega. Þeir byrjuðu 2018 með fjögurra ára verkefni sem hefur notið gríðarlegrar velgengni. Það var framlengt til annarra fjögurra ára og svo væntanlega verður þetta ekkert framlengt aftur heldur bara sett inn í lögin.“ Hann bendir á að lyfjahampurinn hafi fljótlega orðið með verðmætustu útflutningsvörum Dana og að erlend fjárfesting hafi verið mikil. „En Danir bara rækta hampinn og svo er hann fluttur í vinnslustöðvar annað. Það sem við ættum að gera er að rækta hampinn hér á landi, vinna hann og selja út. Við höfum margt sem aðrar þjóðir hafa ekki og áhugi erlendis frá er mikill. Við erum kalt land sem þýðir að ekki þarf að eins mikla orku til að kæla framleiðslustöðvarnar en það er orðið vandamál erlendis. Hér er lítill raki sem er einnig stórt vandamál annars staðar. Við erum með ódýrt rafmagn og gott vatn. Við erum eins og Eden fyrir kannabisræktun innanhúss.“

Sigurður segist vona að ráðamenn þjóðarinnar sjái sér fært að mæta en einnig embættismenn úr ráðuneytunum, heilbrigðisstarfsmenn, háskólafólk og forsvarsmenn stórfyrirtækja. „Það eiga allir að mæta þarna sem hafa einhvern áhuga á að gera Ísland sjálfbærara og grænna. Takmarkið er að bæta lýðheilsu fólks með iðnaði og nýsköpun í heilbrigðiskerfinu. Það er svo önnur umræða hvort fólk vilji afglæpavæða hin ýmsu eiturlyf. Við erum ekki að tala um slíkt.“

Allar upplýsingar um ráðstefnu Hampfélagsins má finna á vefsvæðinu hemp4future.is þar sem einnig er hægt að nálgast miða.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Hampkastið má annars finna á öllum helstu streymisveitum eins og Spotify. Gunnar Dan Wiium, stjórnarmaður í Hampfélaginu, tók viðtalið við Sigurð. Mickael Lakhlifi sá um tæknimál og Andri Karel um fréttaskrif. Heimasíða Hampfélagsins er hampfelagid.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Getur ekki gleymt því sem hún sá í tölvu eiginmannsins – „Ég man það í hvert skipti sem við stundum kynlíf“

Getur ekki gleymt því sem hún sá í tölvu eiginmannsins – „Ég man það í hvert skipti sem við stundum kynlíf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segist vera konan sem Tommy Fury hélt framhjá með og segir þessa mynd sanna það

Segist vera konan sem Tommy Fury hélt framhjá með og segir þessa mynd sanna það
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Simmi Vill segir að þetta sé stærsta kjarabótin fyrir íslenskar fjölskyldur – „Nú verð ég kallaður karlrembupungur“

Simmi Vill segir að þetta sé stærsta kjarabótin fyrir íslenskar fjölskyldur – „Nú verð ég kallaður karlrembupungur“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslensk hjón fóru á kaffihús í miðbænum – Fengu áfall þegar reikningurinn kom

Íslensk hjón fóru á kaffihús í miðbænum – Fengu áfall þegar reikningurinn kom
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mynd af hjónunum á veitingastað vekur athygli: Sorglegur sannleikur sem flest pör þekkja

Mynd af hjónunum á veitingastað vekur athygli: Sorglegur sannleikur sem flest pör þekkja
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð