Þessi 77 ára magnaði tónlistarmaður greindi frá þessu á Instagram-síðu sinni í gær þar sem hann sagðist vera á mjög hægum batavegi eftir sýkinguna. Hann er enn með takmarkaða sjón á öðru auga en vonast til þess að hún komi aftur með tímanum.
Batakveðjum hefur rignt yfir kappann sem er í uppáhaldi hjá mörgum en á mögnuðum ferli sínum hefur hann selt yfir 300 milljón plötur, hvorki meira né minna.
Elton John hefur haft hægt um sig síðastliðið ár eða svo en í fyrrasumar lauk fimm ára tónleikaferðalagi hans, Farewell Yellow Brick Road, sem var hans síðasta á ferlinum. Í haust er svo væntanleg heimildarmynd um hann sem verður frumsýnd á BFI London-kvikmyndahátíðinni.
View this post on Instagram