Kvikmyndin Ljósbrot eftir Rúnar Rúnarsson hefur verið valin á kvikmyndahátíðina í Busan í Suður-Kóreu. Hátíðin er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og jafnframt talin sú mikilvægasta.
Ljósbrot hefur verið að fara sigurför um heiminn eftir að hafa hlotið standandi lófaklapp sem opnunarmynd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Myndin hefur unnið fimm alþjóðleg kvikmyndaverðlaun og einnig hefur Ljósbrots verið valin í forval til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og á Toronto kvikmyndahátíðna sem er sú mikilvægasta í Norður-Ameríku. Framundan eru fjöldi kvikmyndahátíða og hefur Ljósbrot einnig selst vel og mun fara í almennar sýningar um allan heim á næstunni.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Elín Hall, Katla Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldur Einarsson, Gunnar Kristjánsson og Ágúst Wigum.
Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu og upphefst rússibanaferð tilfinninga. Þar sem mörkin milli hláturs og gráturs, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr.
„Á fótboltamáli væri þetta kölluð þrenna reikna ég með. Cannes, Toronto og Busan. Mikilvægustu hátíðirnar í sinni heimsálfu. Við erum einkar stolt og þakklát okkar fólki, sem gerði þetta mögulegt,“ segir Rúnar Rúnarsson leikstjóri.