fbpx
Mánudagur 02.september 2024
433Sport

Hybrid-gras lagt á Laugardalsvöll – Ríki og borg setja 500 milljónir í verkefnið

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 2. september 2024 14:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Reykjavíkurborg, Knattspyrnusamband Íslands og Frjálsíþróttasamband Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal.

Með yfirlýsingunni er stefnt að uppbyggingu tveggja aðskilinna þjóðarleikvanga utanhúss í Laugardal, þar sem þegar er unnið að uppbyggingu þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir.

Laugardalsvöllur yrði þannig byggður upp sem knattspyrnuvöllur eingöngu, þar sem mögulegt yrði að leika stærstan hluta ársins, en nýr þjóðarleikvangur í frjálsíþróttum risi á nýjum stað í Laugardal.

Alþjóðlegur árangur kallar á bætta aðstöðu
Markmiðið er að byggja upp leikvanga í knattspyrnu og frjálsíþróttum með heildarumgjörð og búnað sem uppfylla kröfur til alþjóðlegra keppnisviðburða.

Metnaður stjórnvalda stendur eðli málsins samkvæmt til þess að styðja við sívaxandi árangur og afrek Íslendinga í alþjóðlegri íþróttakeppni, en mikilvægt er að leikvangar standist ríkar kröfur alþjóðlegra íþróttasambanda til alþjóðlegrar keppni.

Laugardalsvöllur, sem hefur verið vettvangur glæsilegra íþróttaafreka frá 1959, er sá leikvangur sem kemst næst því að uppfylla alþjóðlegar kröfur – en þar er hins vegar úrbóta þörf.

Góður árangur íslenskra landsliða og félagsliða í knattspyrnu leiðir til þess að spila þarf leiki í alþjóðlegri keppni allt árið um kring. Fyrsti áfangi í uppbyggingu Laugardalsvallar verður að skipta út núverandi grasi á vellinum fyrir blandað gras (svokallað hybrid-gras) og setja hitunarkerfi undir völlinn. Markmiðið er að gera Laugardalsvöll þannig leikfæran mun stærri hluta ársins en nú er.

Ríki og borg leggja hvor um sig allt að 250 m.kr. til framkvæmdarinnar. Þjóðarleikvangur ehf., sem er í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og KSÍ, annast verkið.

Framúrskarandi aðstaða fyrir frjálsar íþróttir
Með ákvörðun um notkun hybrid-grass á Laugardalsvelli er þar með útilokuð keppni í kastgreinum frjálsíþrótta. Því verður lagt kapp á að reisa nýjan þjóðarleikvang fyrir frjálsíþróttir og hrinda þeirri vinnu af stað eins fljótt og kostur er. Í því samhengi er m.a. horft til keppni á Smáþjóðameistaramóti á Íslandi 2028 sem og Smáþjóðaleika, fáum árum síðar. Vinnan muni byggja á tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðuneytisins um þjóðarleikvang í frjálsíþróttum frá árinu 2021. Leikvanginum er þannig ætlað að vera opinn og aðgengilegur þjóðarleikvangur lýðheilsu sem og mikilvægur þáttur í afreksuppbyggingu með tengingu við Afreksmiðstöð Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Haaland vonast eftir miðum: ,,Ég held ég þurfi að hringja í þá báða“

Haaland vonast eftir miðum: ,,Ég held ég þurfi að hringja í þá báða“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gæti enn farið frá Chelsea á næstu dögum

Gæti enn farið frá Chelsea á næstu dögum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Orri Steinn spilaði sinn fyrsta leik fyrir Sociedad

Orri Steinn spilaði sinn fyrsta leik fyrir Sociedad
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Besta deildin: Benoný með þrennu í markaleik – FH fékk skell á heimavelli

Besta deildin: Benoný með þrennu í markaleik – FH fékk skell á heimavelli
433Sport
Í gær

Allt varð vitlaust eftir færslu FCK um Orra: Margir Danir bálreiðir – ,,Allt er að fara til fjandans hérna“

Allt varð vitlaust eftir færslu FCK um Orra: Margir Danir bálreiðir – ,,Allt er að fara til fjandans hérna“
433Sport
Í gær

Besta deildin: Markalaust á Ísafirði

Besta deildin: Markalaust á Ísafirði