Hrafn Jónsson, pistlahöfundur með meiru, hefur flutt talsvert milli hverfa á höfuðborgasvæðinu, eins og gengur og gerist. Í bráðfyndinni færslu á Facebook greinir hann frá því að hann hafi uppgötvað hjá sér „hræðilegt blæti“ sem snýst um það að hann er sjálfviljugur enn í fimm ólíkum hverfishópum á samfélagsmiðlinum.
„Ég er í Vesturbæjarhópnum (en ég bjó sjálfur síðast í Vesturbænum árið 1995), Miðbæjarhópnum (2014), Norðurmýri (2014) og Hlíðarnar (2020) auk Laugarnesins. Og það er ekki þannig að ég sé þarna óviljugur og blindandi; bara gleymdi að skrá mig úr þeim á sínum tíma. Þvert á móti. Ég er alltaf að skoða pósta úr þessum hópum. „Já ok, kötturinn Mæsa er ekki enn fundin á Gunnarsbrautinni“ „Vá hvað fólk leggur asnalega á Holtsgötunni“, „Já ok, það finnst einhverjum alveg rosalega erfitt að leikskólakennari reyki í miðborginni“,“ skrifar Hrafn.
Hann beinlínis drekki í sig oft á tíðum hversdagslegt tuðið.
„Kannast einhver við þessa lykla? Hefur einhver fundið gamlan iPhone í Manchester United hulstri? Hvað finnst ykkur um þessi blómaker? Rakst á þessa hænu á vappi. Hér er húfa, þarna er ofsakastur.“
Eftir nokkra íhugun segist Hrafn hafa komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé mögulega lægsta form einhverskonar njósnablætis.
„Þetta er ekki einu sinni Instagramráp hjá ókunnugum, eða persónulegir Facebookveggir. Bara runa af algjörlega banal texta úr hversdagslífi fólks. Kannski er þetta endastöð algrímisins; þessi serótínínþrælavél endar bara á því að hlekkja mig við algjörlega nístandi hversdaginn sama hvert ég fer, og ég treð því bara í mig og bið um meira takk.“