fbpx
Miðvikudagur 28.ágúst 2024
Fréttir

Anton fann fyrir nýrri tegund af þreytu eftir fyrsta vinnudaginn – Eftir 25 ár segir hann starfið einnig gefandi og skemmtilegt

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 28. ágúst 2024 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 „Eftir hátt í aldarfjórðungs starf við kennslu og skólamál skil ég og veit að fátt er mikilvægara en góður kennari sem hefur staðgóða þekkingu á sínu fagi auk afburða skilnings á mannlegu eðli. Og þó að kennsla sé afar þreytandi starf þá er það ekki erfitt heldur bæði gefandi og skemmtilegt. Ég er þakklátur því góða fólki sem lagði á sig langt nám og langa vinnudaga til að miðla þekkingu sinni og mennsku mér til hagsbóta og vona svo sannarlega að börnin mín hafi, þegar þau líta til baka, notið sömu upplifunar,“ 

segir Anton Már Gylfason formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum.

Anton Már Gylfason formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum.

Í pistli sínum á Vísi segist Anton Már aldrei hafa ætlað að verða kennari – ekki frekar en svo margir aðrir í stéttinni.  „En eftir langa setu á skólabekk sem teygði sig fram á fertugsaldurinn sótti ég vorið 2001 um auglýstar kennarastöður í nánast öllum framhaldsskólum höfuðborgarsvæðisins og var svo heppinn að fá ráðningu í ungum og framsæknum skóla.“ 

Fann fyrir nýrri tegund af þreytu

Segist hann enn muna hvað hann var þreyttur eftir fyrsta daginn í kennslu, búinn að kenna þremur ólíkum nemendahópum þrenns konar námsefni. „Þetta var alveg ný tegund af þreytu, ólík þeirri sem ég hafði upplifað áður og hafði þó unnið alls kyns erfiðisvinnu milli tarna í námi. Þreyttur en ánægður því mér fannst ég hafa komið einhverju til leiðar og haft áhrif sem ég taldi vera til góðs.“ 

Hugsar hlýtt til eigin kennara

Anton Már segist oft hafa velt þessum fyrsta kennsludegi sínum fyrri sér og þá verið hugsað til allra þeirra kennara sem hann hafi fyrir hitt á lífsleiðinni og notið kennslu hjá. 

 „Mér verður hugsað til Elínar sem var svo blíð, góð og nærgætin við okkur nemendur sína. Þegar hún tilkynnti okkur að hún væri á leið í fæðingarorlof brast hálfur bekkurinn í grát. Hinn helmingurinn fór svo að skæla þegar okkur var sagt að sá sem tæki við okkur væri Jón Mar en hann hafði það orðspor að hann væri bæði strangur og óbilgjarn í samskiptum við nemendur. Við vorum hins vegar fljót að komast að því að hann var hinn mesti ljúflingur því á bak við harðan skrápinn leyndist hinn mesti mannvinur; vissulega strangur kennari en réttsýnn og sanngjarn.

Nokkrum árum síðar tók svo Gústi, annar „strangur“ kennari, við bekknum. Um hann má segja sömu sögu – strangur en sanngjarn – og umfram allt áhugasamur um hag okkar krakkanna. Gústi gerði allt fyrir okkur nemendur sína, lagði til dæmis á sig að lesa þýðingu sína á grein um Maja-frumbyggja úr Encyclopædia Britannica inn á segulbandsspólu fyrir mig þegar ég valdi sem einstaklingsverkefni að fjalla um þann merka ættbálk. Gústi hefur örugglega varið heilli kvöldstund í þessa vinnu og ekki veit ég fyrir víst hve mörg kvöld fóru í svipaða vinnu fyrir aðra nemendur sem höfðu valið sér önnur umfjöllunarefni.

Mér verður líka hugsað til Jóns Barða sem var svo flinkur stærðfræðikennari að honum tókst að vekja áhuga og skilning minn (og velflestra samnemenda minna) á hinni mögnuðu list – algebrunni. Mér verður hugsað til Baldurs rafmagnsfræðikennara sem, með skýrri framsetningu og húmor, gat leitt mig til skilnings á undraveröld rafmagnsins og tengt hana við blessaða algebruna. Og til Sigga, sem með áhuga sínum og þekkingu á viðfangsefninu studdi mig í að skrifa 10 blaðsíðna ritgerð um vatnsorkuver á Íslandi, þó svo að námsáætlunin gerði aðeins ráð fyrir þremur blaðsíðum. Og ekki gleymi ég Hjörleifi sem með einstakri sagnagáfu gerði allar kennslustundir eftirminnilegar.

Ég hugsa til Málfríðar, sem náði með undraverðum hætti að glæða áhuga nemenda sinna á danskri tungu, þrátt fyrir að tungumálið lægi langt fyrir utan virkt áhugasvið okkar sem vorum hugfangin af tækni og raunvísindum. Annar mikill sagnamaður, Einar eðlisfræðikennari, kemur þá upp í hugann en á sinn hægláta og yfirvegaða hátt matreiddi hann flóknustu formúlur fræðigreinarinnar án sjáanlegrar fyrirhafnar svo úr varð hreint lostæti.“

Bar sig saman við þá sem kenndu honum

Anton Már segir að þegar hann hugsi til þeirra sem kenndu honum læðist að honum sá grunur að það að hann hafi aldrei ætlað að vera kennari sé ekki allskostar rétt. „Var það kannski þannig að ég hafi átt erfitt með að sjá sjálfan mig fyrir mér í sama liði og þau? Að ég treysti mér ekki til að standast samanburð?“

Eftir hátt í aldarfjórðungs starf við kennslu og skólamál segist Anton Már skilja og vita að fátt er mikilvægara en góður kennari sem hefur staðgóða þekkingu á sínu fagi auk afburða skilnings á mannlegu eðli. 

„Og þó að kennsla sé afar þreytandi starf þá er það ekki erfitt heldur bæði gefandi og skemmtilegt. Ég er þakklátur því góða fólki sem lagði á sig langt nám og langa vinnudaga til að miðla þekkingu sinni og mennsku mér til hagsbóta og vona svo sannarlega að börnin mín hafi, þegar þau líta til baka, notið sömu upplifunar.

Kennarar skapa verðmæti og því verðum við sem samfélag að fjárfesta í kennurum til hagsbóta fyrir framtíðina. Áfram kennarar!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Atvinnulaus fýlupúki

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bíó Paradís fær Fjólublátt ljós við barinn

Bíó Paradís fær Fjólublátt ljós við barinn
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Móðir hefur barist í fjölda ára – Segir litla virðingu borna fyrir einstæðum foreldrum – „Hringdi í Píeta af því mig langaði bara að fara“

Móðir hefur barist í fjölda ára – Segir litla virðingu borna fyrir einstæðum foreldrum – „Hringdi í Píeta af því mig langaði bara að fara“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Segir farir sínar ekki sléttar af 1818 – Fékk rukkun fyrir þjónustuna og aðra fyrir að kvarta yfir að vera rukkuð

Segir farir sínar ekki sléttar af 1818 – Fékk rukkun fyrir þjónustuna og aðra fyrir að kvarta yfir að vera rukkuð
Fréttir
Í gær

Eigendur jöklaskoðunarfyrirtækisins fjarlægja upplýsingar um sig – Segjast ekki bera ábyrgð á slysum né dauða

Eigendur jöklaskoðunarfyrirtækisins fjarlægja upplýsingar um sig – Segjast ekki bera ábyrgð á slysum né dauða
Fréttir
Í gær

Notuðu kaffivél til kókaíninnflutnings – „En ég er ekkert að ljúga að þér bróðir minn“

Notuðu kaffivél til kókaíninnflutnings – „En ég er ekkert að ljúga að þér bróðir minn“
Fréttir
Í gær

Ólafur Þór geðlæknir um hnífaárásir: Þetta eru helstu áhættuþættirnir 

Ólafur Þór geðlæknir um hnífaárásir: Þetta eru helstu áhættuþættirnir