Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur hlotið hin eftirsóttu „Roger Ebert Golden Thumb“ verðlaun fyrir Snertingu.
„Þetta er mikill heiður,“ segir Baltasar Kormákur. „Roger Ebert var geysilega áhrifamikill og arfleið hans lifir enn. Ég deili þessum verðlaunum með samstarfsfólki mínu sem á ekki síður en ég þátt í velgengni Snertingar.“
„Gullni þumallinn“ var fyrst veittur árið 2004 á Kvikmyndahátíð Rogers Eberts sem um árabil var einn þekktasti og áhrifamesti kvikmyndagagnrýnandi í Bandaríkjunum. Verðlaunin verða afhent á Kvikmyndahátíð Rogers Eberts í apríl á næsta ári en þar verður Snerting sýnd fyrir 1.400 áhorfendur á 50 feta tjaldi í einum fullkomnasta bíósal í Bandaríkjunum.
Heimsþekktir leikstjórar hafa áður fengið Gullna þumalinn, má þar nefna Oliver Stone, Ava DuVernay, Guillermo del Toro og Tilda Swinton.
Snerting hefur verið sögð ein besta mynd ársins bæði hér á landi og í Bandaríkjunum og þá hafa gagnrýnendur sagt Snertingu bestu mynd Baltasars Kormáks.
Leikarar myndarinnar, ekki síst Egill Ólafsson, hafa fengið afbragðsdóma og það sama má segja um aðra sem koma að myndinni. Bergsteinn Björgúlfsson hefur til dæmis verið rómaður fyrir kvikmyndatöku, Sunneva Weisshappel fyrir leikmynd, Högni Egilsson fyrir tónlist og Margrét Einarsdóttir fyrir búninga.
Snerting hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og er hún nú þegar stærsta mynd þessa árs á Íslandi. Á næstu mánuðum mun Universal Pictures dreifa myndinni um allan heim og var hún til að mynda nýlega frumsýnd í Ástralíu við afar góðar viðtökur.