Það hljómar kannski svolítið undarlegt og ótrúlegt að það séu meiri líkur á bílveiki í rafbíl en bensínbíl en þetta er engu að síður staðreynd segir TV 2-Kosmopol sem ræddi við sérfræðinga á þessu sviði.
Einn þeirra heitir Mads Klokker og er yfirlæknir á heyrna- og jafnvægisdeild danska ríkissjúkrahússins. Hann tekur oft á móti fólki sem glímir við bílveiki og hann er ekki í neinum vafa um að fleiri verða bílveikir í rafbíl en bensínbíl.
Samkvæmt því sem kemur fram á vefnum sundhed.dk, þá verður fólk bílveikt af því að jafnvægisstýrikerfi líkamans, sem fylgist með líkamsstellingunum, örvast of mikið. Þetta getur leitt til ógleði og vanlíðunar og í versta falli kastar fólk upp.
Klokker sagði að fjórar ástæður séu fyrir að jafnvægiskerfið örvist of mikið þegar ekið er í rafbíl. Hann sagði að mikil hröðun bílanna eigi hlut að máli og ónáttúrulegar hreyfingar eigi sér stað, hreyfingar sem við höfum ekki lært áður. Þetta sé þegar bremsað er og bíllinn hleður sig, þetta sé ný hreyfing. Þá hafði það áhrif að ekkert vélarhljóð sé og síðan séu það allar upplýsingarnar sem streyma fram á skjánum, þær krefjist athygli.