fbpx
Föstudagur 23.ágúst 2024
Fókus

Sjaldséð sjón: Fyrsta myndin af fræga föður Angelinu Jolie eftir að hún lokaði á hann

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 23. ágúst 2024 08:30

Angelina Jolie og Jon Voight. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Jon Voight, 85 ára, sést sjaldan opinberlega en var myndaður á dögunum borða ís með ungri konu. News.com.au birtir myndirnar.

Hann hefur ekki sést á almannafæri síðan erlendir miðlar greindu frá því að leikkonan og dóttir hans, Angelina Jolie, væri búin að loka á hann og öll samskipti við hann.

„Þrátt fyrir að hafa reynt að ná sáttum þá hefur hegðun Jon orðið til þess að Angie hefur lokað á hann aftur,“ sagði heimildarmaður OK! Magazine.

„Angie hefur verið mjög skýr um að hún vill ekki að hann tali um einkalíf hennar, en hann er alltaf að segja eitthvað.“

Samband feðginanna hefur verið slæmt í mörg ár en versnaði í kjölfar átakanna í Gaza. Jon Voight styður Ísrael á meðan Angelina Jolie, sem hefur lengi verið baráttukona fyrir flóttafólk, styður Palestínu og stendur með fólkinu á Gaza. Voight er einnig mikill stuðningsmaður Donald Trump.

Jon Voight sagði dóttur sína hafa „orðið fyrir áróðri“ í viðtali við Variety í síðasta mánuði.

Heimildarmaður náinn Jolie sagði að „Angelina vill honum vel en talar ekki um hann opinberlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrverandi J.Lo sendi óræð skilaboð eftir stóru skilnaðartíðindin

Fyrrverandi J.Lo sendi óræð skilaboð eftir stóru skilnaðartíðindin
Fókus
Í gær

Komin með nóg af Airbnb út af græðgi og kröfum leigusala – „Hvenær varð Airbnb svona hræðilegt?“

Komin með nóg af Airbnb út af græðgi og kröfum leigusala – „Hvenær varð Airbnb svona hræðilegt?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kynlíf með eiginkonunni og frænda hennar svo gott að hann vill opna sambandið

Kynlíf með eiginkonunni og frænda hennar svo gott að hann vill opna sambandið
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Þessi markmiðasækni var orðin að fíkn hjá mér“

„Þessi markmiðasækni var orðin að fíkn hjá mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tekjudagar DV: IceGuys sögðu gemmér og fengu meira

Tekjudagar DV: IceGuys sögðu gemmér og fengu meira
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snerting tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024

Snerting tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024