fbpx
Fimmtudagur 22.ágúst 2024
Fókus

Seldist upp á 5 mínútum á Vitringana 3

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. ágúst 2024 16:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti mikla athygli þegar jólaauglýsing með þeim Friðriki Ómari, Eyþóri Inga og Jógvan Hansen birtist í kosningasjónvarpinu 1. júní  á RÚV. Þeir kalla sig Vitringana þrjá og munu stíga saman á svið í desember í Hörpu og Hofi. Það seldist upp á allar fyrirhugaðar sýningar á mettíma í morgun  en þeir félagar hafa nú bætt við fleiri sýningum vegna gríðarlegrar eftirspurnar.

„Maður rennur náttúrulega alltaf blint í showin þegar maður startar nýju verkefni en við höfðum trú á þessu strax í upphafi. Svo þarf bara dass af kjarki, þor og kýla svo á það. Við ætlum að færa ykkur grín, grúv og gæsahúð,” segir Eyþór Ingi kátur í bragði.

„Jólamarkaðurinn þegar það kemur að tónleikum hefur verið að breytast síðastliðin ár og okkur fannst við geta sett saman hina fullkomnu skemmtun fyrir alla í desember. Við ætlum að skemmta fólki,” segir Jógvan.

„Mig langaði til að breyta til eftir jólatörnina mína í fyrra en ég hef verið með jólatónleika frá árinu 2015 sem heita Heima um jólin. Það var frábært ævintýri en mér fannst tími til komin að skipta um gír. Það lá í augum uppi fyrir mér að hefja samstarf við Eyþór og Jógvan.  Við erum vinir og það verður gaman að deila þessum tíma og þessari upplifun með þeim,” segir Friðrik Ómar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Þessi markmiðasækni var orðin að fíkn hjá mér“

„Þessi markmiðasækni var orðin að fíkn hjá mér“
Fókus
Í gær

Aðdáendur hafa miklar áhyggjur af heilsu leikkonunnar

Aðdáendur hafa miklar áhyggjur af heilsu leikkonunnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bjarni Ben gagnrýnir aðgerðir RÚV í kjölfar glimmeratviksins – „Mjög skrýtið“

Bjarni Ben gagnrýnir aðgerðir RÚV í kjölfar glimmeratviksins – „Mjög skrýtið“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekjudagar DV: IceGuys sögðu gemmér og fengu meira

Tekjudagar DV: IceGuys sögðu gemmér og fengu meira
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tekjudagar DV: Trommarinn í Dimmu með margfaldar tekjur annarra meðlima

Tekjudagar DV: Trommarinn í Dimmu með margfaldar tekjur annarra meðlima
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tekjudagar DV: LXS-skvísurnar – Tvær launahæstu með milljónum meira en þær launalægstu

Tekjudagar DV: LXS-skvísurnar – Tvær launahæstu með milljónum meira en þær launalægstu