Kieran Trippier vill burt frá Newcastle og hefur Everton áhuga. The Athletic segir frá.
Trippier hefur verið í tvö og hálft ár hjá Newcastle og á tvö ár eftir af samningi sínum. Hann á hins vegar ekki fast sæti í byrjunarliðinu núna og vill hann fara annað þar sem hann er í stærra hlutverki.
Everton leiðir kapphlaupið um bakvörðinn sem stendur ef marka má fréttir í dag.
Hjá Everton myndi Trippier hitta fyrir Sean Dyche, en þeir störfuðu áður saman hjá Burnley.