Alþjóðalögreglan Interpol hefur auglýst eftir 24 ára íslenskum karlmanni, Þóri Kolka Ásgeirssyni, sem ekkert hefur spurst til síðan í lok júlí. Þórir er sonur Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra.
Vísir, sem greindi fyrst frá málinu, hefur eftir Grími Grímssyni, yfirlögregluþjóni og tengilið Íslands við Interpol, að auglýsingin komi frá íslenskum lögregluyfirvöldum. Um er að ræða svokallaða gula tilkynningu sem gildir um einstaklinga sem saknað er.
Fjölskylda Þóris hafi ekki haft spurnir af honum síðan 27. júlí og kveðst Grímur ekki hafa upplýsingar um hvar síðast sást til hans.
Á vef Interpol kemur fram að Þórir hafi mögulega heimsótt lönd á borð við Ítalíu, Sviss og Egyptaland síðustu misseri.