Sjónvarpstöðin TNT birti skemmtilegt myndband á samfélagsmiðlum í gær þar sem leikmenn og knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeildinni sýndu fólki hvernig ætti að bera fram nöfn sín.
Þarna geta knattspyrnuáhugamenn lært ýmislegt, en eins og enskir miðlar vekja athygli á kom flestum á óvart hvernig ætti að bera fram nafn Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United.
Mönnum eins og Erling Braut Haaland og Arne Slot bregður einnig fyrir í myndbandinu sem sjá má hér að neðan.
🗣️ Premier League pronunciations? We've got you… 🤝😅 pic.twitter.com/mMYWq5usvL
— Football on TNT Sports (@footballontnt) August 21, 2024