Það leikur svo sem enginn vafi á að hann er vel efnum búinn en eins og með svo margt annað sem Trump segir, þá er ekki alltaf hægt að ganga að því vísu að hann segi satt.
Nú hefur CNN fengið yfirlit yfir fjárfestingar Trump. Í því kemur fram að hann á rafmynt að verðmæti sem svarar til 130 milljóna íslenskra króna til 660 milljóna.
Það er rafmyntin Etherum sem um ræðir en verðmæti hennar hefur vaxið mikið á nokkrum árum. Fáir áttu kannski von á að Trump léti að sér kveða á rafmyntamarkaðnum.
Trump hefur einnig grætt tæpan milljarð á réttindum varðandi rafræn safnkort, svokölluð NFT, en þetta eru einstök rafræn kort á borð við ljósmyndir.
Það sama gildir um NFT og rafmynt að þetta eru fjárfestingar sem ekki er hægt að festa hönd á. Margar slíkar hafa öðlast miklar vinsældir á síðustu árum en hafa einnig sætt gagnrýni fyrir að vera ótraustar.