Slysið varð þann 12. janúar 2023 þegar bílstjórinn, Danny Glen Tiner, ók flutningabifreið sinni eftir I-10 hraðbrautinni. Hann áttaði sig ekki á því fyrr en of seint að umferð á veginum var stopp og varð það til þess að hann ók á nokkrar kyrrstæðar bifreiðar á mikilli ferð. Mikið eldhaf blossaði upp eftir slysið.
Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að Danny hafði verið í símanum fyrir slysið, nánar tiltekið á TikTok, þar sem hann horfði á alls fjögur myndbönd nokkrum sekúndum áður en slysið varð. Fékk hann alls 22,5 ára fangelsi, eða 4,5 ár fyrir hvern sem lést í slysinu.
Fjórir af þeim sem létust voru starfsmenn AAA Landscaping og voru þeir á leið til vinnu á Ford F-250 bifreið eins þeirra þegar Danny ók á þá. Sá fimmti sem lést hét Ryan Gooding en hann ætlaði að ganga í hjónaband um mitt síðasta ár.