fbpx
Miðvikudagur 21.ágúst 2024
Fókus

Aðdáendur hafa miklar áhyggjur af heilsu leikkonunnar

Fókus
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 09:34

Alicia Silverstone. Myndband/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðdáendur höfðu miklar áhyggjur af heilsu leikkonunnar Aliciu Silverstone eftir að hún birti myndband af sér borða eitraðan ávöxt.

Alicia, sem var stórstjarna tíunda áratugarins og lék í smellum á borð við Clueless, birti myndband af sér á TikTok borða ávöxtinn og spurði netverja hvort þeir vissu hvaða ávöxtur þetta væri.

@aliciasilverstoneWhat the heck is this!? I’m in England and can’t figure it out. 🤔♬ original sound – Alicia Silverstone

„Ókei, ég hef fundið eitthvað og ég veit ekki hvað þetta er, ég þarf ykkar hjálp,“ sagði hún.

„Ég beit í þetta því þetta var á götunni og við vorum að tala um hvort þetta væri tómatur eða ekki, því þetta er ekki tómatur, sjáið laufblöðin. En ef ég bít í þetta, áttu að borða þetta? Þetta er næstum eins og paprika. Getur einhver sagt mér hvað þetta er? Takk!“

Baneitruð planta

Netverjar voru fljótir að benda henni á að þetta væri „solanum pseudocapsicum“, betur bekkt sem „kirsuber Jerúsalem“ og er eitrað.

„Allir hlutar plöntunnar eru eitraðir, sérstaklega óþroskaði ávöxturinn. Einkenni geta verið hiti, sviti, uppköst, magaverkur, hausverkur og hraður hjartsláttur,“ kemur fram á vef eitrunarmiðstöðvarinnar í Queensland. News.com.au greinir frá.

Það kemur einnig fram að fólk hefur dáið eftir að hafa innbyrt plöntuna.

Sprellifandi og hraust

Aðdáendur höfðu því miklar áhyggjur af leikkonunni sem svaraði engum athugasemdum í næstum heilan sólarhring.

Í gærkvöldi lét hún alla vita að hún væri lifandi og við fulla heilsu. „Engar áhyggjur, ég kyngdi ekki,“ sagði hún kímin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Taylor Swift hitti eftirlifendur hryllingsárásarinnar í Southport

Taylor Swift hitti eftirlifendur hryllingsárásarinnar í Southport
Fókus
Í gær

Birgir Steinn opnar sig um andleg veikindi – „Þetta er bara hluti af mér“

Birgir Steinn opnar sig um andleg veikindi – „Þetta er bara hluti af mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vefur lyga til að reyna að hafa Presley fjölskylduna að féþúfu afhjúpaður – Sú seka á yfir höfði sér 20 ár í fangelsi

Vefur lyga til að reyna að hafa Presley fjölskylduna að féþúfu afhjúpaður – Sú seka á yfir höfði sér 20 ár í fangelsi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telja Hollywood-stjörnuna Blake Lively á barmi slaufunar

Telja Hollywood-stjörnuna Blake Lively á barmi slaufunar