fbpx
Fimmtudagur 22.ágúst 2024
Pressan

Fangavörður opnaði umslag og skömmu síðar var hann látinn – Nú hafa þrír verið ákærðir

Pressan
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 17:30

Mark Fischer lést þann 9. ágúst síðastliðinn, 54 ára að aldri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn fangi og tveir aðrir hafa verið ákærðir í kjölfar andláts fangavarðar í Kaliforníu þann 9. ágúst síðastliðinn. Fangavörðurinn starfaði í fangelsinu í Atwater og hafði meðal annars það hlutverk að fara í gegnum póst sem sendur var föngum í fangelsinu.

Þann 9. ágúst opnaði fangavörðurinn umslag sem virtist vera frá lögmannsstofu. Örfáum mínútum síðar byrjaði hann að kvarta undan vanlíðan og óskaði hann eftir heilbrigðisaðstoð. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést tveimur klukkustundum síðar.

Við rannsókn málsins kom í ljós að bréfsefnið hafði verið húðað með fentanýli og öðrum hættulegum fíkniefnum. Umslagið var stílað á Jamar Jones og hefur hann verið ákærður ásamt tveimur öðrum sem grunaðir eru um að hafa ætlað að senda bréfið til hans.

Fentanýl er gríðarlega sterkt verkjalyf sem sagt er vera hundrað sinnum sterkara en morfín. Efnið í mjög litlu magni getur dregið fólk til dauða á nokkrum mínútum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum starfsmaður furðar sig á því hvað varð til þess að snekkjan sökk – Þetta er fólkið sem er saknað

Fyrrum starfsmaður furðar sig á því hvað varð til þess að snekkjan sökk – Þetta er fólkið sem er saknað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er

Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bjóða SpaceX 843 milljónir dollara fyrir að eyðileggja Alþjóðlegu geimstöðina

Bjóða SpaceX 843 milljónir dollara fyrir að eyðileggja Alþjóðlegu geimstöðina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stakk unnustann til bana – Það sem hún gerði síðan skelfdi alla

Stakk unnustann til bana – Það sem hún gerði síðan skelfdi alla
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni