Það var lítið óvænt á boðstólnum í Bestu deild kvenna í kvöld en toppliðin tvö spiluðu sína leiki.
Breiðablik mætti Þrótt Reykjavík á útivelli og var ekki í miklum vandræðum og vann 4-2 útisigur.
Valur mætti þá Fylki á sama tíma og vann mjög sannfærandi og góðan 2-0 heimasigur.
Valur er á toppnum með 46 stig en aðeins stigi á undan Blikum þegar 17 umferðir eru búnar.
Þróttur R. 2 – 4 Breiðablik
0-1 Birta Georgsdóttir
0-2 Karitas Tómasdóttir
1-2 Melissa Alison Garcia
1-3 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
1-4 Samantha Rose Smith
2-4 Caroline Murray
Valur 2 – 0 Fylkir
1-0 Lillý Rut Hlynsdóttir
2-0 Helena Ósk Hálfdánardóttir