fbpx
Miðvikudagur 21.ágúst 2024
Fréttir

Vafasöm dómgæsla í keppninni Sterkasti maður jarðar – „Ég tel að Hafþór hafi verið rændur í þessari grein“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 08:30

Coyne segir Hooper nýta sér slaka í dómgæslu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kraftlyftingamaðurinn Steve Coyne telur að Hafþór Júlíus Björnsson hafi mátt þola strangari dómgæslu í keppninni Sterkasti maður jarðar en sigurvegarinn Mitch Hooper. Hooper hafi marg oft á undanförnum árum komist upp með að klára ekki æfingar sínar til fulls í keppnisgreinum.

Coyne fer yfir ítarlega yfir málið í myndbandi á Youtube sem ber yfirskriftina „Er Mitch Hooper að svindla?“ (e: Is Mitch Hooper cheating?) Niðurstaðan sé sú að svo sé ekki, en að Hooper nýti sér allan þann slaka sem hann telji sig komast upp með hjá dómurum og að dómgæslan sé afar misströng.

Misströng dómgæsla

Hafþór Júlíus varð í öðru sæti í keppninni Sterkasti maður jarðar sem fór fram í Colorado í Bandaríkjunum á dögunum. Þetta er ekki keppnin fræga Sterkasti maður heims. Hafþór vann fimm greinar og setti tvö heimsmet en það dugði ekki til. Hooper vann keppnina með nokkuð afgerandi mun.

Coyne nefnir að Hafþór hafi fengið einstaklega strangan dómara í sirkus handlóðagreininni, Terry Hollins. Hollins var byrjaður að gefa handmerki um að æfing Hafþórs hafi tekist og því hafi Hafþór sett niður lóðin en merkið var hins vegar ekki klárað.

„Ég tel að Hafþór hafi verið rændur í þessari grein,“ segir Coyne. „Ströng dómgæsla er góð svo lengi sem það á við um alla. Vandinn er að Terry Hollins er einn maður og hann var ekki að dæma hjá öllum.“

Á sama tíma hafi Hooper til dæmis ekki hafa þurft að dýfa sér jafn djúpt og aðrir í hnébeygjugreininni.

Gerist aftur og aftur

Coyne bendir á að Hooper hafi sýnt ótrúlega jafna frammistöðu í öllum greinum í keppninni. Hann hafi líka unnið flestar keppnir á undanförnum árum, Sterkasti maður heims, Arnold Classic, Arnold Classic UK og fleiri.

En atriði er varði dómgæslu hafi einnig komið upp á þeim mótum. Til dæmis í keppninni Sterkasti maður heims, sem Hooper vann árið 2023. Þá hafi Hooper augljóslega verið með beygt bak í handlóðagreininni og ekki staðið að fullu uppréttur í drumbalyftunni, svo dæmi séu tekin.

Coyne segir Hooper ekki vera að svindla, heldur frekar að hann sé klár í að nýta sér slaka dómgæslu til þess að klára ekki æfingarnar. Hann komist upp með þetta og þessi litli munur dugi honum til sigurs.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tekjudagar DV: Quang Le yfir meðallaunum

Tekjudagar DV: Quang Le yfir meðallaunum
Fréttir
Í gær

Frábær árangur Hafþórs í keppninni „Sterkasti maður jarðar“

Frábær árangur Hafþórs í keppninni „Sterkasti maður jarðar“
Fréttir
Í gær

Hagkaup mátti njósna með eigin augum um ferðir verktaka á verkstað, en ekki vakta hann með öryggismyndavélum

Hagkaup mátti njósna með eigin augum um ferðir verktaka á verkstað, en ekki vakta hann með öryggismyndavélum
Fréttir
Í gær

Ásmundur vekur athygli á ótrúlegum árangri Elínborgar – „Er það ekk­ert mál fyr­ir litla þjóð að eign­ast heims­meist­ara?“

Ásmundur vekur athygli á ótrúlegum árangri Elínborgar – „Er það ekk­ert mál fyr­ir litla þjóð að eign­ast heims­meist­ara?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tekjudagar DV: Þetta voru mánaðarlaun forsetaframbjóðenda – Tveir greiddu ekki skatt hérlendis

Tekjudagar DV: Þetta voru mánaðarlaun forsetaframbjóðenda – Tveir greiddu ekki skatt hérlendis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Birgir ósáttur við að krossinn hafi verið fjarlægður – „Við erum krist­in þjóð og kross­inn er tákn kristninn­ar“

Birgir ósáttur við að krossinn hafi verið fjarlægður – „Við erum krist­in þjóð og kross­inn er tákn kristninn­ar“