Sky News skýrir frá þessu og segir að þetta hafi komið fram þegar málið var tekið fyrir hjá dánardómsstjóra. Lögreglan hefur ekki upplýst hvaða tegund af hundi um ræðir en segir að ekki sé um „bannaða tegund“ að ræða en sumar tegundir hunda eru bannaðar á Bretlandseyjum.
Hempstead var flutt á sjúkrahús í Southend og síðan á sjúkrahús í Lundúnum en þar lést hún 30. júlí síðastliðinn.
Krufning leiddi í ljós að hún var með bitsár eftir hund á vinstri upphandlegg. Bitið tók aðalæðina í handleggnum í sundur og hún missti mikið blóð. Blóðmissir og lost, sem hún fékk, urðu til þess að hjartað gat ekki dælt nógu miklu blóði og því raskaðist starfsemi fjölda líffæra.