fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Fókus

Tekjudagar DV: LXS-skvísurnar – Tvær launahæstu með milljónum meira en þær launalægstu

Fókus
Mánudaginn 19. ágúst 2024 12:59

LXS-skvísurnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Birgitta Líf Björnsdóttir, Magnea Björg Jónsdóttir, Hildur Sif Hauksdóttir, Ína María Norðfjörð, Ástrós Traustadóttir og Kristín Pétursdóttir mynda vinsælasta áhrifavaldahóp landsins – LXS. Svo miklar eru vinsældir þeirra að tvær þáttaraðir um vinskap þeirra hafa verið gerðar á Stöð 2.

Það er þó mikill munur á tekjum vinkvennanna en tvær tekjuhæstu voru með samtals um 2,4 milljónir í mánaðarlaun í fyrra meðan tvær tekjulægstu eru með samtals um 120 þúsund krónur á mánuði.

Birgitta Líf Björnsdóttir

Birgitta Líf er markaðstjóri World Class – auk þess að vera erfingi ræktarveldisins – og vinsæll áhrifavaldur. Hún átti skemmtistaðinn Bankastræti Club en seldi hann í byrjun sumars 2023.

Birgitta Líf er tekjuhæst LXS-dívanna með 1.251.994 kr. á mánuði. Hún hækkaði um rúmlega 50 þúsund krónur milli ára.

Mynd/Instagram

Magnea Björg Jónsdóttir

Magnea Björg var lengi búsett í Beverly Hills í Bandaríkjunum þar sem hún rak lúxusbílaleigu og er með gráðu í samskiptafræði frá háskólanum í Santa Monica og BA gráðu í viðskiptafræði. Hún er með tæplega 28 þúsund fylgjendur á Instagram.

Magnea hélt áfram að hækka í launum milli ára. Hún var með 822.152 kr. á mánuði árið 2023. Það er talsverð hækkun frá árinu áður, hún var með 478.315 kr. í mánaðarlaun árið 2022. Til samanburðar var hún með 349.974 kr. á mánuði árið 2021.

Mynd/Instagram

Hildur Sif Hauksdóttir

Hildur Sif er með tæplega átta þúsund fylgjendur á Instagram og gat sér einnig gott orð sem bloggari árum áður. Hún er BSc-gráðu í sálfræði, hefur starfað sem samfélagsmiðlastjóri og flugfreyja. Hún flutti til Íslands í fyrra eftir tveggja ára dvöl í London.

Hún er með 49.039 kr. á mánuði miðað við greitt útsvar 2023. Til samanburðar var hún með 319.550 kr. á mánuði árið 2022.

Mynd/Instagram

Ína María Norðfjörð

Ína María er með rúmlega átta þúsund fylgjendur á Instagram, hún er með háskólagráðu í sálfræði og hefur eins og vinkona sín starfað sem samfélagsmiðlastjóri.

Það varð lítil sem engin breyting á launum hennar milli ára. Hún var með 68.953 kr. í mánaðarlaun árið 2023 miðað við greitt útsvar, en árið 2022 var hún með 68.009 kr. á mánuði.

Launin hafa verið svipuð síðastliðin ár. Árið 2020 var hún með rúmlega 40 þúsund krónur á mánuði og árið 2021 var hún með 72 þúsund krónur á mánuði.

Mynd/Instagram

Ástrós Traustadóttir

Ástrós er ekki aðeins áhrifavaldur heldur einnig vinsæll dansari og kannast margir landsmenn við hana úr vinsælu þáttunum Allir geta dansað á Stöð 2.

Hún er með 276.341 kr. á mánuði miðað við greitt útsvar á síðasta ári. Árið 2022 var hún með 305.668 kr. á mánuði

Mynd/Instagram

Kristín Pétursdóttir

Kristín hefur verið að gera það gott um árabil sem leikkona og áhrifavaldur auk þess sem hún hefur starfað sem flugfreyja. Hennar fyrsta verkefni sem leikkona var hlutverk í myndinni Órói árið 2010. Síðan þá hefur hún leikið í ýmsum verkefnum og auglýsingum, eins og þáttunum Fólkið í blokkinni og í leikritinu Mæður sem sló í gegn meðal gagnrýnenda.

Mánaðarlaun Kristínar voru 393.824 kr. miðað við greitt útsvar 2023. Launin lækkuðu milli ára, árið 2022 var hún með 559.665 kr. í mánaðarlaun.

Sunneva Einarsdóttir

Sunneva Einarsdóttir er vinsælust í hópnum, með 58 þúsund fylgjendur á Instagram og í samstarfi við fyrirtæki á borð við Nocco, Nike og Marc Inbane. Hún heldur einnig úti vinsælu hlaðvarpi – Teboðið – ásamt Birtu Líf Ólafsdóttur og kom fram í raunveruleikaþáttunum #Samstarf hjá Stöð 2+ ásamt vinkonu sinni Jóhönnu Helgu Jensdóttur.

Laun Sunnevu hækkuðu verulega milli ára, árið 2022 voru mánaðarlegar tekjur hennar 709.950 kr. en í fyrra voru mánaðarlaun hennar 1.224.572 kr. að meðaltali miðað við greitt útsvar 2023.

Þetta er þriðja árið í röð sem hún hækkar í launum. Árið 2020 voru mánaðartekjur hennar um 190 þúsund krónur og árið 2021 voru þær rétt undir 540 þúsund krónur á mánuði.

Um er að ræða útsvar hvers og eins og eru mánaðarlaun reiknuð út frá því. Upphæðirnar þurfa því ekki að endurspegla föst laun viðkomandi og til að mynda er sleppt skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Gögnin eru opinber fyrir fjölmiðla hjá Skattinum þessa dagana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikarinn biður dóttur sína að fyrirgefa sér – „Mér líður hryllilega og ég vil að þú vitir að ég tók engu sem þú sagðir persónulega“ 

Leikarinn biður dóttur sína að fyrirgefa sér – „Mér líður hryllilega og ég vil að þú vitir að ég tók engu sem þú sagðir persónulega“ 
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hefur ekki talað við fyrrum vin sinn, Davíð Oddsson, um langt skeið – „Ég held að hann hafi farið í fýlu út í mig af því að ég var ekki sammála honum“

Hefur ekki talað við fyrrum vin sinn, Davíð Oddsson, um langt skeið – „Ég held að hann hafi farið í fýlu út í mig af því að ég var ekki sammála honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sóldís Vala er Ungfrú Ísland 2024

Sóldís Vala er Ungfrú Ísland 2024
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svona geturðu séð hvort að kærastinn þinn sé að skoða aðrar konur á Instagram

Svona geturðu séð hvort að kærastinn þinn sé að skoða aðrar konur á Instagram
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svona varð brúðkaupsterta Páll Óskars í Gleðigöngunni til

Svona varð brúðkaupsterta Páll Óskars í Gleðigöngunni til
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jói Fel trúlofaði sig á Miami – „Allt eins og það á að vera“

Jói Fel trúlofaði sig á Miami – „Allt eins og það á að vera“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Halla myndi velja fiskibollur í brúnni sem eilífðarmat, leiðist þrif og hreyfingin er Akkilesarhæll

Halla myndi velja fiskibollur í brúnni sem eilífðarmat, leiðist þrif og hreyfingin er Akkilesarhæll