Samtal Jude Bellingham, Kylian Mbappe, Vinicius Junior og Rodrygo náðist á myndband í hálfleik í leik Real Madrid gegn Mallorca í gær.
Liðin mættust í fyrstu umferð La Liga og gerðu óvænt 1-1 jafntefli. Stórstjörnurnar fóru yfir stóru málin í hálfleik en það dugði ekki til að stela sigrinum á Mallorca.
„Þið þrír, við þurfum að klára sóknirnar því það er andskoti erfitt að hlaupa til baka,“ heyrðist Bellingham segja.
„Ég er að segja það, við verðum að klára eitthvað,“ sagði Mbappe þá.
„Búið allavega til pláss og skjótið,“ sagði Bellingham þá.
Myndband af þessum samskiptum er hér að neðan.
@itsjudithworld pic.twitter.com/inxH1HEEar
— Ria @itsjudithworld (@peterderiri5) August 18, 2024