Willum Þór Willumsson komst á blað fyrir lið Birmingham í dag sem mætti Wycombe í næst efstu deild Englands.
Landsliðsmaðurinn kom inná sem varamaður á 64. mínútu og skoraði þriðja mark Birmingham á 82. mínútu.
Wycombe átti eftir að laga stöðuna í 2-3 með marki Sam Vokes en Birmingham fagnaði að lokum góðum sigri á útivelli.
Tom Brady, goðsögn í amerískum fótbolta, á hlut í Birmingham og ‘taggaði’ Willum í færslu á Instagram.
Það var Sigurður Gísli Bond Snorrason eða Siggi Bond sem vakti athygli á þessu en hann birti mynd af færslunni á Twitter.
Willum fór meiddur af velli undir lok leiks en Alfons Sampsted kom inná í hans stað.
Juju Tom Brady að tagga big Willum pic.twitter.com/SQyevtSd29
— Sigurđur Gísli (@SigurdurGisli) August 17, 2024